"Það er svo mismunandi hvaða stuðning við þurfum" : reynsla foreldra af stuðningi í kjölfar þess að missa barn í sjálfsvígi
Notice bibliographique
Résumé
Bakgrunnur. Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og árlega falla um 800.000 einstaklingar í öllum aldurshópum fyrir eigin hendi og tilraun til sjálfsvígs er stærsti áhættuþátturinn fyrir sjálfsvígi. Sjálfsvíg eru jafnframt önnur algengasta dánarorsök einstaklinga í aldurshópnum 15-29 ára. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða reynslu foreldra af stuðningi í kjölfar þess að missa barn í sjálfsvígi. \nAðferðafræði. Í rannsókninni var notast við aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Tekin voru samtals 13 djúpviðtöl við tíu foreldra sem höfðu misst barn í sjálfsvígi, átta viðtöl við mæður, fimm viðtöl við báða foreldra þar sem þau voru saman í viðtali. Börn þátttakenda voru á aldrinum 17-37 ára þegar þau létust og árafjöldi frá andláti var 3-24 ár. \nNiðurstöður. Helstu niðurstöður sýna að ríkjandi skortur reyndist á stuðningi við foreldrana. Sorgarúrvinnsla hjá foreldrunum reyndist langhlaup. Áfallið var mikið og flóknar tilfinningar eins og sektarkennd og sjálfsásakanir voru til staðar. Afleiðingar áfallsins komu mikið niður á andlegri- og líkamlegri heilsu foreldra. Úrræði voru af misjöfnum toga og mikið undir foreldrunum sjálfum að sækja sér aðstoð ef sáluhjálp brást eða þegar frá leið áfallinu. Þátttakendur stóðu alfarið að öllum kostnaði við meðferðir og úrræði sjálf og lítið reyndist í boði fyrir þennan útsetta hóp. Þátttakendur voru allir á sama máli varðandi væntingar um þjónustu þessu tengdu og myndu öll vilja sjá fastskorðaða verkferla í stuðningi við eftirlifendur. Flestum fannst þjónustan eiga að tilheyra heilbrigðiskerfinu og gagnrýndu mjög áhugaleysi heilbrigðisþjónustunnar. \nÁlyktanir. Rannsakandi ályktar að heilsugæslan ætti að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga í heilbrigðiskerfinu, sérstaklega á landsbyggðinni, og þangað á fólk að geta leitað þjónustu og handleiðslu í sorgarferli líkt og skyndilegum dauðsföllum ástvina sem og öðrum áföllum. Heilsugæslan þarf að hafa úrræði og vinnuferla tengt sálrænum stuðningi við aðstandendur og það er ennfremur ályktun rannsakanda að einstaklingar í þessum aðstæðum þurfi einhvern sem leiðir þá áfram í gegnum sorgina, býður fram aðstoð og upplýsingar um úrræði. \n \nLykilorð: að missa barn í sjálfsvígi; skortur á stuðningi í kjölfar áfalls; langvarandi djúp sorg; hlutverk heilsugæslunnar; fyrirbærafræðileg rannsókn.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,000 |
| Communication savante | 0,000 | 0,000 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,007 | 0,008 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».