,,Ég tárast alveg, þetta var svo mikið ofbeldi” : upplifun og reynsla einstaklinga af einelti í æsku
Notice bibliographique
Résumé
Umræða um einelti og áhrif þess á líf fólks hefur aukist í samfélaginu á undanförnum árum. Þá hefur verið rætt um hversu lítið hafi verið aðhafst í eineltismálum hér á árum áður en hugtakið einelti þekktist jafnvel ekki fyrr en nú á síðastliðnum árum. Tilgangur rannsóknarverkefnisins var að kanna reynslu og upplifun viðmælenda af einelti í æsku og hvaða afleiðingar þeir teldu að það hefði haft á sjálfsmynd þeirra og geðheilsu. \nRætt var við fjóra viðmælendur sem allir áttu það sameiginlegt að hafa orðið fyrir einelti í æsku. Líkanið um iðju mannsins, MOHO, var haft að leiðarljósi til að kanna hvaða áhrif umhverfið hefði á viljann, vanann og framkvæmdagetuna hjá viðmælendunum. Rannsóknarverkefnið samanstendur af samantekt á heimildavinnu og eigindlegri rannsókn. Aðferðin sem var notuð er byggð á aðferðafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Sú aðferð byggir á þeim skilningi að hver og einn sjái heiminn með sínum augum, þar sem sýn hans og túlkun mótast af fyrri reynslu. Sú sýn hefur áhrif á hvernig einstaklingurinn upplifir heiminn og hvernig hann hegðar lífi sínu. Viðmælendurnir greindu allir frá því að eineltið hefði haft afgerandi áhrif á mótun sjálfsmyndar þeirra og brotið hana niður, þannig að þeir upplifi enn í dag óöryggi og óvissu með allt sem þeir taka sér fyrir hendur. Þetta sýnir að röskun á þróun og þroska sjálfsmyndar hefur mikil áhrif á einstaklinga. Ef einstaklingur hefur stutta skólagöngu að baki, brotna sjálfsmynd og litla trú á eigin áhrifamætti hefur það áhrif á starfsval hans og félagslega stöðu. Neikvæð upplifun hefur áhrif á gildismat einstaklings og hvað hann tekur sér fyrir hendur sem hefur síðan áhrif á hlutverk hans seinna meir. Þau hlutverk sem einstaklingur sinnir hefur síðan áhrif á vana og verður að vanamynstri með tímanum. \nEinnig upplifðu viðmælendurnir að eineltið hefði haft mikil áhrif á geðheilsu þeirra. Einn þeirra taldi það sína stærstu þrautagöngu í lífinu að hafa aldrei losnað undan þeirri andlegu vanlíðan sem hann upplifði þegar hann varð fyrir eineltinu.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,004 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,002 | 0,003 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,001 |
| Communication savante | 0,000 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,004 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,014 | 0,009 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».