"Maður fær ekki til baka það sem maður hafði" : upplifun kvenna á breytingum líkamans í gegnum meðgöngu og brjóstagjöf
Notice bibliographique
Résumé
Í gegnum barneignaferlið fara konur í gegnum miklar breytingar á líkama sínum, en upplifun þeirra og reynsla er ólík. Sumar þeirra upplifa jákvæðar tilfinningar til líkamlegra breytinga á meðan aðrar finna fyrir neikvæðum tilfinningum til þessara breytinga. Breytingar, eins og breyting á brjóstum og þyngd, geta spilað inn í tilfinningar þeirra og upplifun. Engar íslenskar rannsóknir hafa verið birtar varðandi líkamsímynd kvenna á meðgöngu eða við brjóstagjöf, en samkvæmt erlendum rannsóknum upplifa margar konur skerta líkamsímynd í gegnum barneignaferlið. \nTilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun kvenna á breytingum á líkamanum í gegnum meðgöngu og brjóstgjöf. Einnig að skoða upplifun kvenna á líkamsímynd í gegnum brjóstagjafartímabilið, ásamt því að skoða reynslu kvenna á viðhorfum samfélagsins til brjóstagjafar. \nNotuð var eigindleg aðferðarfræði, þar sem stuðst var við Vancouver skólann í fyrirbærafræði til gagnaöflunar og greiningar. Tekin voru viðtöl við 8 konur á aldrinum 27-47 ára. Þær höfðu allar reynslu af \nbrjóstagjöf og voru bæði frumbyrjur og fjölbyrjur. Niðurstöður sýndu að konurnar hafa bæði jákvæðar og neikvæðar tilfinningar til líkama síns í gegnum meðgöngu og við brjóstagjöf. Í gegnum barneignaferlið gripu þær í þau bjargráð sem þær höfðu fyrir til að takast á við þær breytingar sem urðu á líkama þeirra. Viðhorf þeirra til líkamans breytist og þær þurfa að læra á breyttan líkama og hjá sumum kvennanna varð breytingin á líkamsímynd varanleg. Viðhorf og skoðanir fagaðila, fjölskyldu, vina og samfélagsins höfðu áhrif á þær á einn og annan hátt. Einnig kom fram að þær konur sem upplifðu neikvæða líkamsímynd hættu fyrr með barnið sitt á brjósti en hinar. \nÁlyktun: Tilfinningar kvenna til líkama síns geta breyst á meðgöngu og við brjóstagjöf. Konurnar geta bæði fundið fyrir jákvæðum tilfinningum og neikvæðum. Það er mikilvægt fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem og ættingja og vini að viðurkenna það og taka tillit til þessa, til að draga úr líkum á andlegri vanlíðan og að konur hætti snemma með börn sín á brjósti. \nLeitarorð: breastfeeding, body image, postpartum, pregnancy
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,001 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,002 |
| Études des sciences et des technologies | 0,002 | 0,000 |
| Communication savante | 0,002 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,002 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,006 | 0,015 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».