Notkun bandaskors í samanburði á aðferðum við heimtur og G-böndun litninga
Notice bibliographique
Résumé
G-böndun litninga er ein algengasta aðferð í almennum litningarannsóknum. Hægt er að notast við margskonar aðferðir við ræktun sýna, heimtur og G-böndun litninga og algengt er að aðferðir þróist í notkun innan ákveðinna rannsóknarstofa. Algengt er að nota bandaskor sem mælikvarða á bæði lengd litninga og gæði aðferða, þar sem fleiri bönd sjást eftir því sem litningar eru lengri og þeir skýrari. Þó hefur ekki verið mikið um rannsóknir þar sem bandaskor er notað markvisst í samanburði aðferða til að reyna að skera úr um með hlutlægum hætti hvaða aðferðir eru bestar við undirbúning sýna fyrir rannsóknir með G-böndun. \nMarkmið rannsóknarinnar var að beita bandaskori í samanburði á aðferðum samhliða öðrum matsþáttum, svo sem sjónrænu mati og fjölda greinanlegra metafasa á smásjárglerjum til að bera saman aðferðir. Bornar voru saman tvær G-böndunaraðferðir, ein aðferð sem notast við trypsín meltiensím og önnur sem notast við pankreatín meltiensím, bæði á beinmergssýnum og blóðsýnum. Einnig voru bornar saman fimm blóðheimtuaðferðir og fjórar beinmergsheimtuaðferðir til að kanna hvort marktækur munur sæist á aðferðunum með notkun bandaskors sem mælitækis. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu að pankreatín G-böndunaraðferð leiddi af sér litninga með marktækt hærra bandaskor en trypsín aðferð, bæði fyrir blóðsýni og beinmergssýni. Meiri munur var á G-böndunaraðferðunum þegar beinmergssýni voru skoðuð en blóðsýni. Samanburður niðurstaðna við sjónrænt mat benti einnig til að pankreatín aðferð skilaði betri niðurstöðum. Samanburður heppnaðist betur þegar bandaskor var talið handvirkt með Vancouver aðferð heldur en þegar sjálfvirkt bandaskor úr tölvustýrðum litningagreini var notað. \nSamanburður blóðheimtuaðferða sýndi að þegar ekki var hægt að gera upp á milli aðferða með því að skoða hlutfall greinanlegra metafasa á hverju smásjárgleri var hægt að nota bandaskor sem viðbótar greiningartæki til að skera úr um mun á aðferðum út frá öðrum þáttum. Þannig staðfesti bandaskor í einu tilfelli, milli B- og L-blóðheimtuaðferða að L heimta gæfi af sér lengri litninga þó svo ekki væri marktækur munur á fjölda greinanlegra metafasa. Í öðrum samanburði, hjá A- og 2B-heimtum var ekki marktækur munur hvorki á fjölda greinanlegra metafasa né á lengd litninga samkvæmt bandaskori. \nNiðurstöður á samanburði beinmergsheimtuaðferða sýndu að í samanburði fjögurra aðferða var ein aðferð (O heimta) með lægsta hlutfall greinanlegra metafasa, og sú aðferð hafði einnig stystu litningana samkvæmt bandaskori. Ekki var marktækur munur á fjölda greinanlegra metafasa með hinum þremur aðferðunum, B-, C- og S-heimtu, en þó var hægt að staðfesta mun á lengd þeirra með bandaskori. \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda til að notkun bandaskors sem hluta af mati á gæði aðferða skili árangri. Markviss samanburður á aðferðum við G-böndun litninga með bandaskori getur hjálpað til við að leiða í ljós hvort munur sé á þeim, og er mikilvægt tæki í að bera kennsl á ákveðna þætti aðferðanna sem rannsaka mætti áfram.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,002 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,000 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,006 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,003 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,000 | 0,001 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».