Tengsl líkamshreysti, hreyfifærni, hugrænnar færni og greindar hjá unglingum í 10. bekk grunnskóla
Notice bibliographique
Résumé
Markmið: \nMeginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl líkamshreysti, hreyfifærni, hugrænnar færni og greindar hjá unglingum í 10. bekk í grunnskóla. Undirmarkmið rannsóknarinnar var að bera saman líkamshreysti, hreyfifærni, hugræna færni og greind tveggja hópa nemenda úr 10. bekk. Annars vegar nemenda úr tveimur grunnskólum Reykjavíkur og hins vegar nemenda sem tilheyrðu unglingalandsliðshópum í knattspyrnu, handknattleik og frjálsíþróttum. \nAðferðir: \nLíkamshreysti, hreyfifærni, hugræn færni og greind 141 unglings var mæld, þar af voru 107 nemendur tveggja grunnskóla í Reykjavík sem valdir voru með slembiúrtaki og 34 afreksíþróttaunglingar sem tilheyrðu ungligalandsliðshópum í knattspyrnu, handknattleik og frjálsíþróttum þegar rannsóknin var gerð. Líkamshreysti var mæld með fjórum stöðluðum prófum; 20 metra spretthlaupi, 6 mínútna þolhlaupi, langstökki án atrennu og setseilingarprófi (e. sit and reach) sem mæla hraða, þol, kraft og liðleika. Hreyfifærni var prófuð með MABC-2 hreyfifærniprófi sem inniheldur átta þrautir sem meta fínhreyfingar, boltafærni og jafnvægi. Hugræn færni var prófuð með Ottawa Mental Skills Assesment Tool (OMSAT-3) prófi sem innheldur 48 spurningar og út frá svörunum má meta grundvallarfærni, sállíkamlega færni og vitræna færni. Greind var prófuð með Raven Standard Progressive Matrices (Raven SPM) sem er fimm kafla óyrt greindarpróf með tólf þrautum í hverjum kafla. \nNiðurstöður \nTengsl árangurs á OMSAT-3 hugræna færniprófinu og líkamshreystiprófinu mældust marktæk miðað við allan hópinn þegar leiðrétt hafði verið fyrir kynjamun og mun á afrekshópi og skólahópi. Marktæk fylgni mældist einnig á milli hugrænnar færni og líkamshreysti. Tengsl árangurs á MABC-2 hreyfifærniprófi og hreystiprófinu mældust marktæk miðað við allan hópinn. Marktæk tengsl mældust á milli þessara prófa hjá báðum kynjum og í báðum hópunum (afrekshópi og skólahópi). Tengsl árangurs á Raven-greindarprófinu og hinna prófanna þriggja, OMSAT-3, MABC-2 og líkamshreysti, mældust ekki marktæk. Unglingar í afrekshópi náðu marktækt betri árangri á OMSAT-3 hugræna færniprófinu, MABC-2 hreyfifærniprófinu og líkamshreystiprófinu en unglingar í skólahópi. Drengir náðu marktækt betri árangri á líkamshreystiprófinu en stúlkur. Marktækur munur mældist ekki á árangri drengja og stúlkna í afrekshópi og skólahópi á Raven greindarprófinu. \nÁlyktun: \nTengsl eru á milli líkamshreysti og hreyfifærni og einnig á milli líkamshreysti og hugrænnar færni hjá unglingum í 10. bekk. Drengir eru hraustari en stúlkur í 10. bekk bæði í skólahópi og afrekshópi. Afreksunglingar í 10. bekk eru hraustari, með betri hreyfifærni og hugræna færni en aðrir skólaunglingar þó ekki mælist munur á greind hópanna.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,001 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,000 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,002 | 0,001 |
| Communication savante | 0,000 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,001 | 0,001 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,025 | 0,026 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».