Aðlögun aðstandanda að sykursýki maka : upplifun einstaklings við að eiga og búa með maka með sykursýki af týpu 1
Notice bibliographique
Résumé
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða upplifun og túlkun einstaklings sem á maka með insúlínháða sykursýki á aðlögun hans að sjúkdómnum. Það getur aukið innsæi hjúkrunarfræðinga á aðlögun maka og fjölskyldu einstaklinga með sykursýki týpu 1 að sykursýkinni og þannig bætt heilbrigðisþjónustuna. \nRannsóknarspurningar voru opnar og óstaðlaðar til að fá sem bestu mynd af túlkun meðrannsakanda af reynslu hans af því að eiga maka með sykursýki. Spurningarnar gengu út frá eftirfarandi hugmyndum um spurningar: Hvernig gengur mökum sykursjúkra einstaklinga að aðlagast lífsstíl þeirra? Hvernig gengur að aðlaga fjölskyldulífið að sjúkdómnum? Hefur sjúkdómurinn áhrif á líðan og umhyggju makans gagnvart þeim sjúka á jákvæðan eða neikvæðan hátt? \nRannsóknaraðferð var eigindleg fyribærafræðileg samkvæmt Vancouver-skólanum. Vancouver-skólinn byggir rannsóknaraðferðir sínar á því að greina viðtöl þar sem notaðar eru óstaðlaðar spurningar sem bjóða upp á sveigjanleika í viðtölum. Hugmyndin að þessari rannsóknaraðferð er ætlað að auka skilning á mannlegum fyrirbærum m.a. í þeim tilgangi að bæta mannlega þjónustu eins og t.d. í heilbrigðisþjónustu. \nNiðurstöður rannsóknarinnar gáfu eitt aðalþema sem var að „forða börnunum frá því að fá sykursýki“. Meðrannsakandi vill koma í veg fyrir það að börn sín fá sykursýki líka eins og makinn, ef hann getur það. Að öðru leyti hefur meðrannsakanda gengið vel að aðlagast þeim lífstíl sem sykursýki maka hans krefst af honum og heimili þeirra en meðrannsakandi telur að litlu hafi þurft að breyta. Sjúkdómurinn hefur áhrif á líðan og umhyggju meðrannsakanda gagnvart maka og börnum sem kemur m.a. fram í því að honum finnst maki þreyttari. Varðandi frekari barneignir eftir að maki greindist var ekki rætt að ráði að sögn meðrannsakanda. Að lokum upplifir hann sig á varðbergi gegn einkennum sykursýkinnar hjá börnunum sínum þar sem möguleiki er á að sjúkdómurinn sé genískur. \nÁlyktanir: Greint er frá fjórum atriðum sem rannsakandi telur hafa takmarkandi áhrif á rannsóknina sem eru: Einn rannsakandi og aðeins einn meðrannsakandi og því eitt kyn, rannsókn er unnin undir tímapressu, eigindlegar rannsóknir hafa lítið alhæfingargildi. Gildi rannsóknarinnar fyrir hjúkrunarfræði er að auka innsæi hjúkrunarfræðinga á aðlögun maka að sykursýki sambúðaraðila síns. Fyrir rannsakanda hefur hún mikið gildi bæði sem einstakling og sem væntanlegan hjúkrunarfræðing. Nýtist hjúkrunarstjórnendum með því að bæta gæði þjónustunnar inn á sjúkrastofnunum. Rannsóknin getur aukið líkur á gagnreynda hjúkrun með því að auka þekkingu að aðstæðum aðstandanda sykursjúkra. Rannsakandi mælir með því að fjölga eigindlegum rannsóknum á þessu viðfangsefni til að undirbúa jarðveginn fyrir megindlegar rannsóknir. \nRannsakandi vonar að rannsókn þessi sé hvatning til frekari rannsókna á fræðsluþörf og þátttöku maka sykursjúkra einstaklinga á aðlögun að þessum sjúkdómi því rannsóknir sýna að sykursjúkir meðhöndla betur þennan sjúkdóm ef þeir njóta margvíslegs stuðnings frá maka eða vinum. \nLykilhugtök: Coping, aðlögun, sykursýki, maki, mataræði, fjölskylda.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction machine sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Le volet Gemma est une étiquette directe du modèle pour chaque travail de la base, lue sur la notice réduite au titre. Le volet Codex est un classifieur appris des 10 348 étiquettes directes de Codex et calibré sur les taux pondérés de l'échantillon; les champs sans appui suffisant ne portent aucun appel Codex. Le mode candidate est l'union des deux volets; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont pas des étiquettes humaines.
Scores du classifieur distillé par catégorie (deux têtes)
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,003 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,000 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,003 | 0,002 |
| Communication savante | 0,007 | 0,006 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,005 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,198 | 0,103 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; un appel candidat d’une seule source (Gemma direct ou Codex distillé), pas un consensus.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».