,,Að taka skref fyrir skref“ : reynsla einstaklinga í heilsueflandi móttöku af sálrænum áföllum og heilsufarsvandamálum
Notice bibliographique
Résumé
Bakgrunnur: Rannsóknir sýna að einstaklingar sem hafa orðið fyrir sálrænum áföllum glíma í auknum mæli við fjölþætt heilsufarsvandamál. Heilsueflandi móttaka innan heilsugæslu beinist að skjólstæðingum sem glíma við slík heilsufarsvandamál þar sem veitt er einstaklingsmiðuð meðferð og stuðningur. Áfallamiðuð þjónusta er mikilvæg í heilbrigðisþjónustu og getur eflt lífsgæði einstaklinga eftir sálræn áföll. \nTilgangur: Að skoða reynslu einstaklinga í heilsueflandi móttöku af sálrænum áföllum og heilsufarsvandamálum með það að markmiði að auka þekkingu og dýpka skilning fagfólks á mikilvægi áfallamiðaðrar þjónustu. \nAðferð: Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði og unnið eftir tólf meginþrepum. Þátttakendur voru fimm karlmenn og fimm konur, valin í gegnum heilsueflandi móttöku heilsugæslu. Viðtöl við hvern þátttakanda voru tvö, tuttugu viðtöl í heildina. Notast var við ACE spurningalistann sem skimunartæki fyrir sálrænum áföllum í bernsku og viðtalsramma með opnum spurningum. \nNiðurstöður: Sálræn áföll geta haft gríðarleg áhrif á heilsufar einstaklinga til lengri tíma litið og voru niðurstöður greindar í sjö meginþemu: Upplifun af áföllum; Endurtekin áföll; Líkamleg heilsufarsvandamál í æsku og á fullorðinsárum; Geðræn heilsufarsvandamál í æsku og á fullorðinsárum; Vanræksla í æsku; Úrvinnsla og Áfallamiðuð nálgun. Þátttakendur höfðu töluverða reynslu af sálrænum áföllum og fjölþættum heilsufarsvandamálum, bæði í æsku og á fullorðinsárum. Rauði þráðurinn var að taka þurfi skref fyrir skref við úrvinnslu áfalla og heilsufarsvandamála og áfallamiðaðri nálgun var ábótavant. \nÁlyktanir: Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk hugi að sálrænum áföllum og heilsufarsvandamálum skjólstæðinga, geti veitt stuðning og viðeigandi aðstoð. Með því má fyrirbyggja eða hindra fjölþætt heilsufarsvandamál þar sem sálræn áföll hafa haft áhrif. Áfallamiðuð þjónusta er mjög mikilvæg og getur bætt lífsgæði og heilsufar einstaklinga. Heilsugæslan er oftast fyrsti viðkomustaður skjólstæðinga í heilbrigðiskerfinu. Innan heilsueflandi móttöku heilsugæslu er mikilvægt að kortleggja betur heilsufarsvandamál vegna sálrænna áfalla og veita áfallamiðaða nálgun við skjólstæðinga. \nLykilorð: sálrænt áfall, áfallamiðuð þjónusta, heilsufarsvandamál, heilsugæsla, heilsueflandi móttaka heilsugæslu, heilsugæsluhjúkrun, fyrirbærafræði.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,003 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,000 |
| Études des sciences et des technologies | 0,003 | 0,001 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,001 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,013 | 0,007 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».