Reynsla kennara af fræðslu og forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum
Notice bibliographique
Résumé
Umfjöllunarefni rannsóknarinnar sem er lýst í þessari ritgerð er reynsla kennara á fræðslu og forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Það er í höndum kennara að vernda og fræða nemendur sína. Megin tilgangur rannsóknarinnar var að kanna og rannsaka reynslu kennara til forvarnarverkefna og fræðslu gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Að auki var tilgangur rannsóknarinnar að kanna reynslu og upplifun kennara á kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum og hvernig upplifun kennara er af háskólanámi í kennslufræði hvað varðar undirbúning og fræðslu til kennara á kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Með þessu er leitast eftir því að finna leiðir til að efla kennara í forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. \nLeitað var svara við rannsóknarspurningunni með viðtölum við grunnskólakennara á Akureyri. Rannsóknaraðferðin er eigindleg með fyrirbærafræðilegri nálgun og notast var við rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Úrtakið samanstóð af átta þátttakendum sem eru grunnskólakennarar. Viðtölin voru greind í yfir og undirþemu sem lýstu reynslu kennara til fræðslu- og forvarnarverkefna gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Textinn er flokkaður eftir innihaldi viðtala. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að miklu leyti í samræmi við niðurstöður úr erlendum rannsóknum, sem sýna að kennarar hafi ekki þá þekkingu sem þarf til að sinna góðu forvarnarstarfi gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að fræðsla til verðandi grunnskólakennara hvað varðar forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum, sé afar takmörkuð og jafnvel minni en erlendar rannsóknir gefa til kynna. Kennararnir voru meðvitaðir um skyldur sínar, töluðu um tilkynningarskyldu en einnig að þeir væru óöruggir þegar kæmi að því að tilkynna grun um kynferðislegt ofbeldi. Þeim fannst þeir þurfa að hafa eitthvað skjalfest í höndum sér. Það er samhljóma niðurstöðum erlendra rannsókna sem og innlendra. \nNiðurstöður leiddu í ljós að meðrannsakendur upplifðu óöryggi eftir kennaranámið og fannst þekking sín á kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum afar takmörkuð. Lítil sem engin fræðsla var í kennaranáminu og vildu allir meðrannsakendur fá meiri fræðslu um kynferðislegt ofbeldi. Þeir töldu réttast að sú fræðsla væri í kennaranáminu. Óöryggi meðrannsakenda leiddi til þess að meirihluti þeirra töldu þekkingu sína á forvarnarverkefnum það takmarkaða að þeir treystu sér ekki til þess að sinna forvarnarfræðslu gegn kynferðisofbeldi gagnvart börnum. \nLykilorð: Kynferðisofbeldi, nemendur, börn, kennarar, forvarnarverkefni, fræðsla
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,000 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,001 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,000 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,000 |
| Communication savante | 0,000 | 0,000 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,001 | 0,001 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,001 | 0,007 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».