Þú þarft bara að sanna þig. : reynsla kvenna af námi og starfi sem telst óhefðbundið fyrir kyn þeirra - húsasmíði og tölvunarfræði.
Notice bibliographique
Résumé
Í ritgerðinni er gerð grein fyrir rannsókn á reynslu kvenna sem stundað hafa nám sem ekki telst hefbundið fyrir kyn þeirra. Rannsóknin er eigindleg og byggir á femínískri rannsóknarnálgun þar sem stuðst er við aðferðir Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á upplifun og reynslu kvennanna m.a. með það í huga að vera innlegg í jafnréttisumræðu í samfélaginu í þeirri von að hægt væri að nýta niðurstöðurnar til að þróa jafnréttisstarf í skólum og atvinnulífi. \nÞátttakendur í rannsókninni voru alls átta. Fjórar konur sem lokið höfðu námi í húsasmíði og fjórar konur sem lokið höfðu námi í tölvunarfræði. Konurnar voru á aldrinum 26–36 ára þegar rannsóknin fór fram og meðalaldur þeirra var um 31 ár. Gögnum var safnað með samtals 10 samtölum við konurnar. Rannsóknin var framkvæmd út frá 12 meginþrepum í rannsóknarferli Vancouver-skólans þar sem leiðarljósið var að leita að rauðu þráðunum í reynslu meðrannsakenda. \nNiðurstöður rannsóknarinnar eru m.a. þær að konur sem stunda nám í karllægum greinum mæta gjarnan hindrunum en mismiklum þó eftir eðli þess náms sem þær stunda. Þannig urðu húsasmiðirnir sem sinna líkamlegri störfum meira varir við beina fordóma heldur en tölvunarfræðingarnir. Meðal tölvunarfræðinga finnst þó meiri verkaskipting milli kynjanna heldur en húsasmiðirnir upplifðu. Kynjakerfi Walby birtist í reynslu kvennanna en þær eiga þó allar sameiginlegt að hafa ögrað hinu félagslega yfirráðakerfi með námsvali sínu. Niðurstaðan er þó sú að kynjakerfið hafi ögrað þeim til baka með aðskilnaði og undirskipun svo sem verkaskiptingu, efasemdum um hæfni, launamuni og áreitni. \nRannsóknin og niðurstöður hennar gefa gagnlegar vísbendingar um hvernig konurnar átta upplifðu nám og störf við tvær karllægar greinar og hvernig reynslu þær hafa öðlast. Reynsla kvennanna gefur innsýn í það að skoða þurfi ýmsa þætti bæði í skólum og atvinnulífi og bæta þar úr svo bæði kyn hafi jafna möguleika á því að spjara sig. Gagnsemi rannsóknarinnar er m.a. sú að hún sýnir fram á mikilvægi þess að skólakerfið sé meðvitað um stöðu kynjanna í samfélaginu almennt. Ekki er nóg að hvetja konur í karllægt nám ef skólakerfið er ekki tilbúið og kennarar ekki tilbúnir að treysta kvenkyns nemendum til að leysa þau verkefni sem fyrir þær eru lögð.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,003 | 0,003 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,002 | 0,000 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,001 | 0,003 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,003 | 0,003 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».