MétaCan
Menu
Retour à la cohorte
Enregistrement W7063964397

Árangur af hjúkrunarstýrðri þjónustu fyrir börn með starfræna hægðatregðu

2018· dissertation· is· W7063964397 sur OpenAlexaboutno aff

Notice bibliographique

RevueSkemman · 2018
Typedissertation
Langueis
DomainePhysics and Astronomy
ThématiqueMagnetic confinement fusion research
Établissements canadiensnon disponible
Organismes subventionnairesnon disponible
Mots-clésBarnAnimal production
DOInon disponible

Résumé

récupéré en direct d'OpenAlex

Bakgrunnur: Hægðatregða hjá börnum er algengt vandamál í heilbrigðiskerfinu um allan heim og henni fylgir bæði álag á heilbrigðiskerfið og kostnaður. Um 95% barna sem eru með hægðatregðu þjást af starfrænni hægðatregðu og er henni lýst sem alvarlegu heilsufarsvandamáli hjá börnum sem hefur veruleg áhrif á líf bæði barnanna og fjölskyldna þeirra. Til að meðferðin sé sem árangursríkust er mikilvægt að hefja hana sem fyrst eftir að barnið þróar með sér hægðatregðu. Meðferðin þarf að fela í sér mikinn stuðning og eftirfylgd, bæði við barn og fjölskyldu þess, ásamt langvarandi lyfjameðferð. Á Barnaspítala Hringsins (BH) hefur verið rannsakað hvernig foreldrar, bæði bráð- og langveikra barna, upplifa stuðning frá hjúkrunarfræðingum í formi stuttra meðferðarsamræðna (SMS), byggða á Calgary- fjölskyldumats- og meðferðarlíkaninu.
\nMarkmið: (i) Megintilgangur þessa kerfisbundna fræðilega yfirlits (KFY) var að samþætta rannsóknir sem gerðar hafa verið á árangri af hjúkrunarstýrðri þjónustu (HSÞ) fyrir börn með starfræna hægðatregðu og (ii) að skoða hvaða meðferðum hefur verið lýst í HSÞ fyrir börn og unglinga með starfræna hægðatregðu. Að auki (iii) var annar tilgangur yfirlitsins að skoða íslenskar rannsóknir á upplifuðum stuðningi foreldra langveikra og bráðveikra barna eftir SMS, byggðar á Calgary- fjölskyldumats- og meðferðarlíkaninu, og draga út frá þeim niðurstöðum ályktun um hvort slík meðferð gæti hentað við þjónustu barna með starfræna hægðatregðu.
\nAðferð: Rannsóknarsnið: Byggist á aðferðafræði KFY og nær yfir megindlegar rannsóknir. Stuðst var við leiðbeiningar frá Joanna Briggs stofnuninni (JBI Reviewers‘s Manual, 2017) við gerð yfirlitsins og PRISMA yfirlýsingin var notuð í uppsetningu ritgerðar og framsetningu á leitarniðurstöðum. Leitað var í gagnagrunnunum Pubmed og CINAHL að birtum greinum frá 1. janúar 2003 til 1. febrúar 2018. Gæði rannsókna voru metin samkvæmt MAStARI viðmiðum frá Joanna Briggs stofnuninni. Notast var við „matrix“ til að lýsa þeim greinum sem voru með í yfirlitinu og til að samþætta niðurstöður með lýsandi frásögn.
\nNiðurstöður: Fimm rannsóknargreinar voru með í fyrri hluta KFY þar sem yfirlit um árangur af HSÞ var kynnt ásamt því að meðferðarinntaki þjónustunnar var lýst. Niðurstöðurnar gefa til kynna að árangur af HSÞ við starfrænni hægðatregðu barna sé góður og ekki síðri en í læknisstýrðri þjónustu (LSÞ). Skipulögð sértæk þjónustuform, þar sem meðferðarinntakið samanstendur af upplýsingasöfnun og líkamsmati, ásamt stuðningi í formi fræðslu, gerðar meðferðarplans og markvissrar eftirfylgdar til að stuðla að meðferðarheldni, virðist vera lykillinn að árangri. Í síðari hluta KFY voru 5 rannsóknargreinar með í yfirliti um hvernig foreldrar á BH, sem fengu SMS frá hjúkrunarfræðingi, upplifðu stuðning. Í fjórum af þeim rannsóknum var marktækur munur á upplifuðum stuðning fyrir og eftir meðferð. Í tveimur rannsóknanna voru það mæðurnar sem upplifðu marktækt meiri stuðning, í einni rannsókninni var það meginumönnunaraðilinn, sem í níu af tíu tilfellum voru mæður barnanna, og í einni voru það báðir foreldrarnir en í þeirri rannsókn var ekki gerður greinarmunur á mæðrum og feðrum.
\nÁlyktun: Þrátt fyrir að starfræn hægðatregða hjá börnum sé algengt vandamál hefur hún lítið verið rannsökuð. Á Íslandi hafa leiðbeiningar um starfræna hægðatregðu ekki verið gefnar út og ættu framtíðarrannsóknir að beinast að orsökum, meðferðarúrræðum og árangri þeirra til þess að hægt sé að gera góðar leiðbeiningar byggðar á gagnreyndri þekkingu. Hjúkrunarfræðingar eru þeir heilbrigðisstarfsmenn sem líklega koma hvað mest að eftirfylgd ungra barna, s.s. í ungbarnavernd og í skólahjúkrun. Þeir eru í lykilhlutverki til að fyrirbyggja hægðatregðu (s.s. með fræðslu til foreldra í ungbarnavernd) og að skima fyrir vandamálinu og þurfa þeir því að búa yfir góðri þekkingu á hægðatregðu barna. HSÞ er fýsilegur kostur fyrir börn með starfræna hægðatregðu. Meðferðin þarf að fela í sér stuðning við bæði barnið og umönnunaraðila þess og hafa íslenskar rannsóknir bent til þess að SMS séu hjálplegar til að veita mæðrum stuðning.

Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.

Comment cette classification a été obtenuedéplier

Prédiction distillée sur la base complète

Imitation des enseignants

Ni prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.

score de la tête « metaresearch » (Codex)0,001
score de la tête « metaresearch » (Gemma)0,000
Version: codex-gemma-dda1882f352aStatut de validation: machine_predicted_unvalidated
Catégories candidatesMéta-épidémiologie (sens strict), Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger)
Catégories consensuellesCharge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger)
DomaineSignal candidat: aucune · Signal consensuel: aucune
Devis d'étudeSignal candidat: Sans objet · Signal consensuel: aucune
GenreSignal candidat: Autre · Signal consensuel: Autre
Score de désaccord entre enseignants0,761
Score d'incertitude au seuil0,999

Scores Codex et Gemma par catégorie

CatégorieCodexGemma
Métarecherche0,0010,000
Méta-épidémiologie (sens strict)0,0010,001
Méta-épidémiologie (sens large)0,0010,001
Bibliométrie0,0010,001
Études des sciences et des technologies0,0010,000
Communication savante0,0000,000
Science ouverte0,0010,000
Intégrité de la recherche0,0010,001
Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger)0,4450,009

Scores machine (provisoires)

Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.

Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.

Tête enseignante Opus0,013
Tête enseignante GPT0,288
Écart entre enseignants0,274 · la distance entre les deux têtes enseignantes sur ce seul travail
Statut de validationscore_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découle

Classification

machine, non validée

Prédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.

Devis d'étudeSans objet
Domainenon disponible
GenreAutre

Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».

En bref

Citations0
Publié2018
Routes d'admission1
Résumé présentoui

Explorer davantage

Même revueSkemmanMême sujetMagnetic confinement fusion researchTravaux en français237 207