Samanburðarannsókn á fjölskylduhjúkrunarmeðferð fyrir foreldra óværra ungbarna og hefðbundinni hjúkrunarmeðferð: Rannsóknaráætlun
Pourquoi ce travail est dans la base
Une base qui oublie comment elle a trouvé un travail ne peut pas être vérifiée. Voici les voies qui ont admis celui-ci.
Notice bibliographique
Résumé
Mikill grátur og pirringur ungbarns reynir mikið á þolrif foreldra, sem stöðugt leita leiða til að hugga ungbarnið. Þegar foreldrum gengur illa að róa ungbarnið geta þeir efast um hæfni sína í foreldrahlutverkinu og við það getur streita þeirra aukist. Mikilvægt er að styðja foreldra til að takast á við þessar aðstæður þar sem afleiðingar óværðar geta verið margvíslegar og mis alvarlegar. Hér á landi eru ekki til nein gögn um árangur þeirrar meðferðar sem heilsugæsluhjúkrunarfræðingar veita óværu ungbarni og foreldrum þess samkvæmt leiðbeiningum á heilsugæslustöðvum. \nTilgangur verkefnisins er að leggja fram rannsóknaráætlun til að bera saman áhrif fjölskylduhjúkrunarmeðferðar fyrir foreldra óværra ungbarna við hefðbundna meðferð sem lýst er í handbók ung- og smábarnaverndar heilsugæslustöðva. Hugmyndafræðilegur bakgrunnur fjölskyldumeðferðarinnar er Calgary fjölskylduhjúkrunarlíkanið, Barnard’s barnaheilsumatslíkanið, Solihull-nálgun og kenning Bandura um trú á hæfni sína (sjálfsöryggi). \nFjölskylduhjúkrunarmeðferðin byggir á þremur 40-90 mín. heimavitjunum og tveimur símtölum, auk þess sem foreldrar geta haft samband við hjúkrunarfræðinginn með tölvupósti. Í meðferðinni er lögð áhersla á virka hlustun, hvatningu, eflingu á hæfni í foreldrahlutverki, að draga fram sjónarhorn ungbarnsins (ljá barninu rödd), að veita fræðslu varðandi þroska, grát og tákn ungbarns, að stuðla að vissri reglu í umönnun ungbarns varðandi svefn og næringu og að kenna foreldrum mismunandi huggunaraðferðir. \nSett er fram sú rannsóknartilgáta að foreldrar sem fá fjölskylduhjúkrunarmeðferð telja sig eftir á minna stressaða, kvíðna og þunglynda en þeir sem fá hefðbundna meðferð samkvæmt handbók ung- og smábarnaverndar heilsugæslustöðva. Mæður hafa meiri trú á hæfni sinni í móðurhlutverkinu en þær sem fá hefðbundnu meðferðina. Auk þess eru ungbörn í meðferðarhóp minna óvær og hafa reglubundnari svefn- og daghrynjanda eftir meðferðina en fyrir. \nRannsóknarsniðið er aðlagað tilraunasnið fyrir tvo hópa með fyrir og eftir prófanir. Upplýsingum frá foreldrum verður safnað með fjórum spurningarlistum í byrjun, í lok meðferðar og við 10 mánaða aldur ungbarns hjá báðum hópum, auk í tveimur hálfstöðluðum símaviðtölum hjá meðferðarhóp. Spurningalistar sem verða lagðir fyrir báða foreldra eru Edinborgar-þunglyndiskvarðinn (EPDS), Kvíðakvarði Spielbergers (STAI) og Foreldrastreitukvarði/ stutt útgáfa (PSI/SF). Fyrir móður verður að auki lagður kvarði um trú á hæfni í foreldrahlutverkinu (PMP S-E) fyrir og eftir meðferð. \nÚrtakið verður hentugleikaúrtak með 40 pörum foreldra óværs ungbarns á aldrinum 7 daga -12 vikna og verða tuttugu pör valin af handahófi í hvern hóp. Megindleg gögn verða greind með SPSS forritinu og við prófun tilgátna verður miðað við marktektarmörk ≤0,05. \nMeð rannsókninni skapast aukin þekking á áhrifum tveggja meðferða sem hjúkrunarfræðingar veita foreldrum óværra ungbarna. \n \nLykilorð: Óværð (grátur/pirringur), ungbarn, kvíði, þunglyndi, foreldrastreita, trú á hæfni sína, fjölskylduhjúkrun, meðferð.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,005 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,004 | 0,004 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,005 | 0,002 |
| Bibliométrie | 0,003 | 0,002 |
| Études des sciences et des technologies | 0,007 | 0,001 |
| Communication savante | 0,000 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,003 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,007 | 0,009 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,023 | 0,026 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découle