Greinarger í kjölfar málþings um vistkerfisnálgun
Why this work is in the frame
A frame that forgets how it found something cannot be audited. These are the routes that admitted this work.
Bibliographic record
Abstract
Ný stefna Samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni var samþykkt á aðildarríkjaþingi samningsins í desember 2022. Hún gengur undir heitinu Kunming-Montreal Global Biodiversity Framework eða GBF. Varðandi innleiðingu markmiða stefnunnar segir í texta samþykktarinnar að stefnan skuli innleidd með vistkerfisnálgun (e. ecosystem approach). Í nýjum stefnum matvælaráðuneytisins er mikil áhersla lögð á vistkerfisnálgun. Í matvælastefnu til ársins 2040 birtist m.a. sú framtíðarsýn að „framleiðsla sem byggist á nýtingu lifandi auðlinda standist öll viðmið um sjálfbærni nýtingar og hafi vísindi vistkerfisnálgunar og varúðar að leiðarljósi.“ Í landbúnaðarstefnu kemur fram áhersla á að „landnotkun í landbúnaði tryggi verndun og endurheimt viðkvæmra og mikilvægra tegunda og vistkerfa til að stuðla að líffræðilegri fjölbreytni með vísindi vistkerfisnálgunar að leiðarljósi.“ Land og líf, stefna stjórnvalda fyrir landgræðslu og skógrækt til ársins 2031 leggur áherslu á að „efla vernd, viðgang og heilleika vistkerfa á grunni vistkerfisnálgunar.“ Í aðgerðaáætlunum fyrir ofangreindar stefnur þarf að skilgreina hvernig vistkerfisnálgun er innleidd í stjórnun nýtingar og framleiðsluháttum þeirra greina sem matvælaráðuneytið fer með. Stuttu áður en málþingið var haldið var skýrslan Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur kynnt og sett í samráðsgátt stjórnvalda en hún er viðamikil samantekt nefndar og starfshópa hennar um áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum. Nokkru síðar kynnti matvælaráðuneytið drög að nýrri stefnu í lagareldi, Uppbygging og umgjörð lagareldis – Stefna til ársins 2040. Í þessari stefnu, og í Auðlindinni okkar er lögð áhersla á beitingu vistkerfisnálgunar. Í ljósi þessa taldi matvælaráðuneytið að þörf væri á faglegri rýni og ráðgjöf um hvernig best væri að því staðið að innleiða vistkerfisnálgun, sem og að auka almenna umfjöllun og umræðu um málefnið. Matvælaráðuneytið leitaði því til BIODICE í júní 2023 og ákvörðun var tekin um að halda málþing 21. september 2023 um vistkerfisnálgun í samstarfi MAR og BIODICE með áherslu á málaflokka matvælaráðuneytisins. BIODICE hafði nokkru áður kynnt starfsemi sína fyrir matvælaráðherra. BIODICE er samstarfsvettvangur einstaklinga, stofnana og fyrirtækja sem hefur að markmiði að efla þekkingu og skilning á líffræðilegri fjölbreytni á Íslandi (sjá biodice.is). Innan BIODICE er sameinuð mikil sérfræðiþekking sem getur nýst til að ramma betur inn hvernig megi móta og fylgja eftir þeirri framtíðarsýn og áherslum sem settar hafa verið fram í stefnumörkun stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni og sem koma einnig fram í áherslum alþjóðastofnanna. Þetta ár stendur BIODICE fyrir Hátíð líffræðilegar fjölbreytni sem samanstendur af fjölbreyttum viðburðum og ákveðið var að málþingið yrði hluti hátíðarinnar. Matvælaráðuneytið og BIODICE ákváðu að á málþinginu skyldi m.a. verða fjallað um: • Alþjóðasamninga og stefnu íslenskra stjórnvalda varðandi líffræðilega fjölbreytni og vistkerfisnálgun, samhengi og hugtakanotkun. • Túlkun hugtaksins og hvernig vistkerfisnálgun ætti að birtast í málaflokkum matvælaráðuneytisins: Sjávarútvegi, landbúnaði þ.m.t. landgræðslu og skógrækt, lagareldi og lífríki ferskvatns. • Vistkerfisnálgun í samhengi loftslagsmála og skipulagsáætlanir sem stjórntæki fyrir vistkerfisnálgun og til verndar líffræðilegri fjölbreytni í sjálfbærri auðlindanýtingu. Í kjölfar málþingsins tæki BIODICE saman helstu sjónarmið sem fram komu auk tillagna um þau lykilatriði sem eru grundvöllur þess að vistkerfisnálgun sé viðhöfð fyrir mismunandi framleiðslugreinar, sem og aðgerðir við innleiðingu hennar og beitingu. Slík samantekt myndi nýtast við mótun aðgerðaáætlana fyrir málaflokka ráðuneytisins.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.000 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.046 | 0.010 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from it