„Það ætluðu allir að vinna saman gegn þessum óvini:“ Reynsla hjúkrunardeildarstjóra af störfum sínum á tímum Covid-19. Fyrirbærafræðileg rannsókn.
Bibliographic record
Abstract
ÚTDRÁTTUR Tilgangur Erlendar rannsóknir sýna að hjúkrunarstjórnendur bráða- og legudeilda upplifðu margvíslegar áskoranir í störfum sínum í heimsfaraldrinum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna áður ókannaða reynslu íslenskra hjúkrunarstjórnenda af störfum sínum í heimsfaraldrinum. Aðferð Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn voru tekin 15 opin einstaklingsviðtöl við hjúkrunarstjórnendur, 14 konur og einn karlmann, sem störfuðu á Landspítalanum (LSH) og Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) a.m.k. síðan í ársbyrjun 2020. Gagnasöfnun fór fram árið 2023 og við gagnasöfnun og gagnagreiningu var stuðst við Vancouver-skólann. Niðurstöður Yfirþema rannsóknarinnar er „Það ætluðu allir að vinna saman gegn þessum óvini,“ sem er lýsandi fyrir reynslu allra þátttakenda sem upplifðu í heimsfaraldrinum samstöðu og stuðning úr öllum áttum, frá samstarfsfólki, yfirmönnum og samfélaginu í heild sinni. Stjórnendurnir fundu fyrir mikilvægi stjórnendahlutverksins og upplifðu tímabilið valdeflandi og lærdómsríkt. Niðurstöðurnar sýna einnig að hjúkrunarstjórnendurnir upplifðu mikið álag og minni tími var fyrir ýmsar skyldur sem fylgja stjórnunarstörfum vegna mikillar óvissu, tíðra breytinga og óviðunandi aðstöðu. Mikill tími fór í að vera til staðar fyrir starfsfólk á öllum tímum sólarhringsins, halda því upplýstu og tryggja öryggi þess og sjúklinga. Stjórnendurnir upplifðu að mestu áskoranirnar tengdust stjórnun mannauðsins og smitrakningu. Flestir þátttakendur voru ánægðir með frammistöðu sína en sáu ekki fram á að geta staðið til lengdar undir álaginu sem almennt fylgir starfinu. Ályktanir Megináskorun hjúkrunarstjórnendanna í heimsfaraldrinum var að tryggja mönnun, vera til staðar fyrir starfsfólk, smitrakning og halda uppi hæfni á hverri vakt. Stjórnendurnir upplifðu að mönnunarvandi olli stöðugu álagi í starfi og höfðu allir íhugað að hætta störfum. Þetta undirstrikar nauðsynina á aukinni aðstoð í mannauðsmálum, sérstaklega á álagstímum. Þrátt fyrir álagið fundu stjórnendur fyrir aukinni hæfni og ánægju vegna samvinnu og samstöðu í heilbrigðisþjónustunni og í samfélaginu. Lykilorð Covid-19, fyrirbærafræði, hjúkrunarstjórnendur, samfélagslegur stuðningur, stuðningur í starfi
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.016 | 0.010 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.004 | 0.004 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.007 | 0.002 |
| Bibliometrics | 0.003 | 0.006 |
| Science and technology studies | 0.004 | 0.002 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.001 |
| Open science | 0.003 | 0.002 |
| Research integrity | 0.004 | 0.007 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.009 | 0.004 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".