,,Maður var búinn að tapa .. tapa slagnum" : upplifun eftirlifandi maka af því að vera umönnunaraðili og reynsla þeirra af þjónustu frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Bibliographic record
Abstract
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar sem er eigindleg var tvíþættur: 1) að varpa ljósi á upplifun maka af því að vera umönnunaraðili fyrir ástvin með krabbamein, 2) skoða reynslu af þjónustu frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) fyrir, við og eftir andlát maka, sem fengu þaðan líknandi meðferð. \nRannsóknarspurningar: Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar: \n1)\tHver er upplifun maka af því að vera umönnunaraðili fyrir ástvin með krabbamein? \n2)\tHver er reynsla maka af þeirri þjónustu sem hann fékk á HSS; fyrir, við og eftir andlát ástvinar sem fengið hafði þar líknandi meðferð? \nAðferð: Notuð var fyrirbærafræðileg rannsóknaraðferð samkvæmt Vancouver-skólanum í \nfyrirbærafræði. Tekin voru viðtöl við sex einstaklinga sem misst höfðu maka úr krabbameini, en einn þátttakandi kaus að draga þátttöku sína til baka. Eftir að viðtölin voru skrifuð upp voru þau greind í þemu. \nNiðurstöður: Greind voru tvö greiningarlíkön úr viðtölunum sem hvort um sig innihélt yfir- og undir þemu tengt hvorri rannsóknarspurningunni fyrir sig. Fyrsta yfirþemað í greiningarlíkani eitt var umönnun lífsförunautar-, og undir því þemun stuðningur og nýta tímann saman. Þema tvö var sorg og sorgarviðbrögð og undir því voru þemun tilfinningar aðstandenda fyrir og eftir andlát, fyrri missir og bjargráð. Síðasta þemað í greiningarlíkani eitt var styrkjandi þættir og undir því voru þemun fræðsluþarfir og leit í trú. Fyrra yfirþemað í greiningarlíkani tvö var þjónusta frá HSS og undir því voru þemun þjónustan í heild, mismunandi þörf fyrir eftirfylgd og andlátið. Seinna yfirþemað var samskipti við heilbrigðiskerfið og undir því voru þemun greiningarferlið og skipulag. \nÁlyktanir: Upplifun maka af því að vera umönnunaraðili er mörgum þungbær. Meðrannsakendur voru í heildina ánægðir með þá hjúkrun sem þeir fengu, hvort sem var á legudeildinni eða frá heimahjúkrun. Það var þeim mikill styrkur í baráttunni að finna góðvild starfsfólksins í þeirra garð. Rannsakendur telja að sú þjónusta sem í boði er á Suðurnesjum fyrir maka og aðra aðstandendur sem misst hafa ástvin úr krabbameini, uppfylli oft ekki þarfir þeirra. Þessi hópur hefur þörf fyrir andlegan stuðning í formi fræðslu, allt frá greiningu sjúkdóms fram yfir andlát og formleg eftirfylgd þarf að vera til staðar. \nLykilhugtök: Eftirfylgd, krabbamein, sorg, sorgarmeðferð, sorgarviðbrögð, umönnunarbyrði og umönnunaraðili.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.003 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.003 | 0.003 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.002 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.004 | 0.005 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.006 | 0.006 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".