Mikilvægi fjölskyldna við hjúkrun : viðhorf hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk)
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Veikindi fjölskyldumeðlims er viðfangsefni allrar fjölskyldunnar þar sem veikindi auka oft álag á fjölskylduna og geta haft áhrif á viðhorf og samskipti innan hennar. Fjölskylduhjúkrun getur bætt samskipti innan fjölskyldu, haft áhrif á gæði hjúkrunar og verkferla á sjúkradeildum, aukið samvinnu við fjölskyldur, leitt til styttri innlagna og jafnvel komið í veg fyrir endurinnlagnir. Viðhorf hjúkrunarfræðinga getur haft áhrif á það hvort og hvernig þeir veiti fjölskylduhjúkrun en hjúkrunarfræðingar sem eru þeirrar skoðunar að veikindi séu fjölskyldumál geta náð góðum árangri í að tileinka sér þekkingu og klíníska færni í að veita fjölskylduhjúkrun. Bakgrunnur, þekking, þjálfun og reynsla hjúkrunarfræðinga í að veita fjölskylduhjúkrun getur haft áhrif á viðhorf þeirra. \nTilgangur rannsóknarinnar er að meta viðhorf hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) til fjölskylduhjúkrunar. Einnig hvort viðhorf þeirra breyttist á innleiðingarferlinu og hvort munur sé á viðhorfi eftir bakgrunni þátttakenda. \nAðferð: Rannsóknin var íhlutunarrannsókn án samanburðarhóps, þar sem gerður var, innan íhlutunarhópsins, samanburður fyrir og eftir íhlutunartímann. Íhlutunin var innleiðingarferli fjölskylduhjúkrunar á SAk. Notað var mælitækið ,,Families Importance in Nursing Care – Nurses’ Attitudes“ (FINC-NA) en það var lagt fyrir þátttakendur tvisvar. Á tíma 1 svöruðu 133 þátttakendur (92%) og á tíma 2 svöruðu 132 (89%). Úrtakið var hjúkrunarfræðingar og ljósmæður starfandi á innleiðingardeildum SAk. Úrvinnsla gagna fór fram í SPSS. \nNiðurstöður: Viðhorf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á SAk til fjölskylduhjúkrunar er almennt jákvætt. Það breyttist ekki í innleiðingarferlinu. Þátttakendur með hærra menntunarstig og lengri starfsreynslu upplifðu fjölskyldu síður sem byrði (p<0,05). Þeir þátttakendur sem töldu að það væri almenn stefna (afstaða) að hlúa að fjölskyldum á sinni deild höfðu jákvæðara viðhorf (p<0,05). \nÁlyktanir: Það er mikilvægt að styðja áfram við jákvæð viðhorf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á SAk og hvetja þá áfram í að veita fjölskylduhjúkrun í störfum sínum. \n\tLykilorð:Fjölskylduhjúkrun – Viðhorf hjúkrunarfræðinga – Calgary fjölskyldumats- og meðferðarlíkanið
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.003 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.002 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.016 | 0.017 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".