Reynsla íslenskra feðra af heimafæðingu. „Frábær upplifun, algjörlega rétt ákvörðun fyrir okkur“
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Feður vilja taka virkan þátt í barneignarferlinu og eru nánast undantekningarlaust viðstaddir fæðingu barna sinna. Þeir upplifa oft að vera utanveltu í kerfi sem er sniðið að mæðrum, þar sem upplýsingar til þeirra eru ófullnægjandi. Tíðni heimafæðinga hefur farið vaxandi án þess að reynsla feðra af þeim hafi verið mikið skoðuð. Tilgangur þessarar rannsóknar var að dýpka skilning á reynslu feðra af heimafæðingu með rannsóknarspurningunni; hver er reynsla feðra af heimafæðingu? \nAðferð: Innihaldsgreining var notuð til þess að greina svör 65 feðra sem svöruðu opinni spurningu, í samnorrænni spurningalistakönnun, um reynslu af heimafæðingum. Að auki voru tekin djúpviðtöl við tvo feður um reynslu þeirra. Þar var notast við ferli Vancouver skólans í fyrirbærafræði við gagnasöfnun og greiningu. \nNiðurstöður: Meginþemað í gögnunum er að heimafæðing er vel ígrunduð ákvörðun verðandi foreldra sem leiðir til jákvæðrar upplifunar föður af fæðingarferlinu. Feður lýsa fæðingunni sem frábærri upplifun. Þeir lýsa persónulegum tengslum og trausti til ljósmóður og að þeir séu virkir þátttakendur í fæðingarferlinu þar sem óskir þeirra og fjölskyldunnar séu virtar. Ákvörðunin um heimafæðingu var stór þáttur reynslu þeirra, þar sem viðhorf og fordómar samfélagsins um heimafæðingar, fyrri reynsla, vilji til að vera við stjórn og öryggissjónarmið komu sterkt fram. \nÁlyktanir: Frekari rannsókna er þörf á reynslu feðra af barneignarferlinu eftir fæðingarstað. Mikilvægt er að efla upplýsingagjöf og umræðu um heimafæðingar í samfélaginu og skoða hvaða þættir hafa áhrif á val á fæðingarstað.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame machine prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. The Gemma side is a direct model label for every work in the frame, read from the title-only record. The Codex side is a classifier learned from the 10,348 direct Codex labels and calibrated to design-weighted sample rates; fields without enough sample support carry no Codex call. Candidate is the union of the two sides; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels.
Distilled classifier scores by category (both heads)
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.000 | 0.000 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.006 | 0.004 |
| Scholarly communication | 0.009 | 0.005 |
| Open science | 0.001 | 0.005 |
| Research integrity | 0.003 | 0.005 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.144 | 0.056 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; a candidate call from one source (direct Gemma or distilled Codex), not a consensus.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".