„Vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs“ : reynsla og upplifun sjósundsiðkenda af áhrifum sjávarbaða á heilsu og líðan og möguleikar í íslenskri heilsuferðaþjónustu
Bibliographic record
Abstract
Draga má þá ályktun að tengsl séu á milli aukinna vinsælda sjávarbaðaiðkunar og þeirrar jákvæðu upplifunar sem henni fylgir. Þó rannsóknum sé enn ábótavant á þessum vettvangi lagði ég í leiðangur til að skoða þessi tengsl nánar. Eftirfarandi rannsóknarspurning er þungamiðja verkefnisins: Hver er reynsla og upplifun sjósundsiðkenda af áhrifum sjávarbaða á heilsu þeirra og líðan? Með þessari nálgun er leitast við að draga upp skýra mynd af bæði líkamlegri og andlegri reynslu iðkenda sjávarbaða. Leitast er við að kanna hvaða lærdóm megi draga af þessari reynslu á vísindalegum vettvangi og í framhaldinu að setja fram tillögur um hvernig mögulegt væri að standa að uppbyggingu og markaðssetningu sjósunds- og sjávarbaðaiðkunar í íslenskri heilsuferðaþjónustu. \n \nSjávarböð og sjósund hafa notið æ meiri vinsælda á Íslandi og af þeim sökum er forvitnilegt að rannsaka að hvaða leyti mögulegt sé að nýta sjósunds- og sjávarbaðaiðkun í afþreyingar- og heilsubótarskyni, einkum á vettvangi heilsuferðaþjónustu. Fjallað er í grófum dráttum um sögu sjávarbaða, bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Þá er gerð úttekt á þróun sjósundsins á Íslandi ásamt yfirlitsmynd af helstu sjávarbaðstöðum á Íslandi, ekki síst út frá sérstöðu landsins vegna aðgangsins að heitu og köldu vatni. Í því samhengi ræði ég stuttlega um vatnsmeðferðir og áhrif sjávarseltunnar á mannslíkamann. \n \nAðferðarfræði rannsóknarinnar var eigindleg og fól fyrst og fremst í sér djúpviðtöl við fimm sjósundsiðkendur. Jafnframt var stuðst við bæði vettvangsathuganir og óformleg viðtöl, sem hér verða kölluð samtöl á vettvangi sjósunds- og sjávarbaðaiðkunar. Við greiningu á djúpviðtölunum var notaður fyrirbærafræðilegur skilningsrammi Vancouver-skólans, en samtölin byggðu einkum á skráningu úr dagbókarfærslum. Rannsóknin gaf til kynna heilsufarstengda reynslu af sjósunds- og sjávarbaðaiðkun, einkum áhrif sjávarbaða á króníska verki viðmælenda og um leið væntingar og hugmyndir um hvernig nýta megi þá reynslu til að byggja upp og þróa sjósundsiðkun og heilsuferðaþjónusu á Íslandi. \n \nRannsóknin sýnir að sumir sjósundsiðkendur eru tilbúnir að leggja töluvert á sig þegar þeir synda í alls konar veðrum og vindum í ísköldum sjó til þess að upplifa meiri vellíðan í formi betri líkamlegrar heilsu og andlegrar líðunar. Auknar vinsældir sjósunds- og sjávarbaðaiðkunar á Íslandi síðasta áratuginn allt í kringum landið benda til þess að æ fleiri sjósundsiðkendur upplifi jákvæð áhrif sjávarbaðaiðkunar á heilsu þeirra og líðan. Í þessu ljósi geri ég tillögur með hjálp NSD (New Service Development) þjónustuþróunarlíkans og með vísan í aðrar rannsóknir um hvernig megi hugsanlega standa að þróun sjósunds- og sjávarbaða á vettvangi heilsutengdrar ferðaþjónustu á Íslandi í framtíðinni. \n \nLjóst er að frekari rannsókna er þörf varðandi heilsugildi sjávarbaða og möguleikana á því að markaðssetja íslensk sjávarböð ekki einungis sem afþreyingarkost heldur sem raunverulegan valkost við vöruþróun á sviði íslenskrar heilsuferðaþjónustu. \n \nLykilorð: Sjóböð, sjósund, kuldi, afþreying, heilsubót, linun verkja, heilsuferðaþjónusta.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.004 | 0.004 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.002 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.003 | 0.002 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.003 |
| Open science | 0.003 | 0.002 |
| Research integrity | 0.003 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.025 | 0.022 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".