Klofið land, klofið sjálf. Leonard Cohen og leitin að kanadískri bókmenntahefð
Bibliographic record
Abstract
Ritgerðin fjallar um höfundarverk Leonard Cohen, jafnt skáldsögur, ljóðabækur og hljómplötur, í samhengi við þann klofning í kanadískum bókmenntum sem fræðimenn telja að hafi einkennt þær allt frá seinni heimsstyrjöld. \nÍ fyrri hlutanum er sjónum beint að uppvexti Cohen í Montreal, þar sem enskum og frönskum áhrifum, gyðingdómi og kaþólsku ægir saman. Sérstaklega verður skoðað samband hans við tvo menn, föðurinn sem kynnti hann fyrir enskum bókmenntum og hefðum, og móðurafann sem lagði áherslu á hinn gyðinglega uppruna þeirra. Á endanum vex Cohen þó upp úr þessum fyrirmyndum og finnur sér nýjar, bæði kennara sína við hinn virta McGill háskóla og hið löngu látna spænska skáld Federico Garcia Lorca. \nÁ 7. áratugnum fer fyrst að kveða að Cohen í Kanada sem ljóðskáldi og rithöfundi. Verður hann hér settur í samhengi við aðra kanadíska höfunda og þá sérstaklega Robert Kroetsch sem á sama tíma var að hafna evrópskum fyrirmyndum og leitaðist við að finna hið sér-kanadíska í bókmenntunum. Báðir höfundar leggja mikla áherslu á klofninginn sem þeir telja að einkenni Kanada og birtist á ýmsan hátt í þjóðarsálinni. \nUndir lok áratugarins flytur Cohen til New York borgar og fer að semja lög sem öðlast miklar vinsældir. Hér stendur hann í skugga Bob Dylan og eiga þeir margt sameiginlegt, þó að ýmislegt greini þá að, og verður ekki hjá því komist að bera þessi tvö söngvaskáld saman. Eigi að síður virðist hann enn á margan hátt klofinn persónuleiki, og tekst á við þennan klofning allan 8. áratuginn. Í verkum hans má meðal annars sjá átök á milli friðarsinna og hermennsku, kvennamanns og einnar konu manns, gyðingdóms og kaþólskra áhrifa, ensku og frönsku og ekki síst á milli persónuleika Leonard Cohen og fjölmiðlapersónunnar „Leonard Cohen.“ \n\tÁ 9. áratugnum tekst honum að vissu leyti að vinna bug á þessum klofningi á plötunni Various Positions, og undir lok áratugarins stígur hann fram sem heildstæðari persóna og nýtur aukinna vinsælda. Klofningurinn hefur þó ekki með öllu horfið, og hann virðist fyrst sættast við sjálfan sig og hinar mörgu arfleifðir sínar á 10. áratugnum þegar hann gengur í búddatrúarklaustur á fjallinu Mt. Baldy í Kaliforníu. Þegar hann snýr þaðan aftur á fyrsta áratug 21. aldar hefst lokaþáttur ferils hans, hin langa kveðjustund, sem stendur enn. \n\tÁ lokalagi nýjustu plötunnar birtist persónan „Leonard“ mælanda sem „a lazy bastard living in a suit.“ Ekki er hægt að átta sig á hver þessi „Leonard“ er nema skoða höfundarverkið í heild sinni, áhrifavaldana og ekki síst það umhverfi sem „Leonard“ þessi ólst upp í.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.012 | 0.012 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".