Ungar konur og offita : áhersla á þjónustu í tengslum við hjáveituaðgerðir
Bibliographic record
Abstract
Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangurinn er að afla upplýsinga um offitu og hjáveituaðgerðir með áherslu á ungar konur og í framhaldi af því leggja fram rannsóknaráætlun til að dýpka þekkingu á efninu. \nOffita er vaxandi heilsufarslegt vandamál hér á landi sem og í heiminum. Konur eru í meirihluta þeirra sem kjósa að fara í hjáveituaðgerð, til þess að fá lausn á offituvanda sínum. Tilgangur fræðilegrar umfjöllunar þessa verkefnis er að skoða hvað rannsóknir hafa leitt í ljós varðandi viðfangsefnið. Meðal annars sýna rannsóknir að hjáveituaðgerð er talin örugg meðferðarleið. Ýmsir fylgikvillar hafa komið upp í kjölfar hjáveituaðgerða en með góðum undirbúningi og eftirfylgni má draga úr þeim. Fræðsla um næringu og breytingar á orku- og bætiefnaþörf er mikilvægur hluti ferilsins. Bætiefnameðferð er sérstaklega nauðsynleg fyrir konur á barneignaraldri. Hvað þyngdartap varðar hefur hjáveituaðgerð besta langtíma árangurinn af þeim meðferðum sem bjóðast einstaklingum í offitu . \nLögð voru drög að rannsókn sem hefur þann tilgang að rannsaka sérstaklega stöðu ungra kvenna á Íslandi sem hafa farið í hjáveituaðgerð. Með eigindlegri rannsóknaraðferð, byggðri á hugmyndafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði, teljum við að hægt sé að átta sig betur á ástæðunum sem liggja að baki ákvörðunartöku ungra kvenna um aðgerð. Einnig hversu víðtæk áhrif geta komið fram í kjölfarið á hjáveituaðgerðum og hvaða áhrif aðgerð getur haft á líf þeirra í kjölfarið. Lítið er um ritrýndar fræðilegar heimildir um offitu og hjáveituaðgerðir hér á landi en við teljum að sérstök þörf sé á eigindlegum rannsóknum til þess að dýpka þekkingu og auka skilning hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Aukin þekking leiðir til betri fræðslu og undirbúnings. \nLykilhugtök : Offita, offituaðgerðir, hjáveituaðgerð, konur, hjúkrun, næring, meðganga
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.006 | 0.005 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".