Fæðingarsamtal : rannsóknaráætlun
Bibliographic record
Abstract
Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni höfunda til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknaráætlunarinnar er að þróa og innleiða fæðingarsamtal fyrir frumbyrjur í mæðravernd, byggt á viðtalsramma sem unninn er út frá hugmyndafræði heildrænnar hjúkrunar (e. integrative nursing), salutogenesis og öðrum þáttum tengdum barneignarþjónustu, og meta áhrifin af þeirri íhlutun. Höfundar draga ályktanir út frá þeim heimildum sem lagðar hafa verið til grundvallar rannsóknaráætlun þessari og nýta þær til að byggja fæðingarsamtalið upp. Kynnt eru drög að fimm útgangspunktum fæðingarsamtalsins í umræðukafla rannsóknaráætlunarinnar. Þeir eru: heildræn nálgun, ferli fæðinga, gagnlegar íhlutanir á meðgöngu, val á fæðingarstað og trú á eigin getu (e. self efficacy). Höfundar leggja til að notuð verði rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði í fyrirhugaðri rannsókn. \n\tLeitað verður svara við því hvort hægt sé að draga úr áherslu á áhættuþætti barneignarferlisins og auka vægi andlegs heilbrigðis og jákvæðrar upplifunar af fæðingu með innleiðingu fæðingarsamtals í 25 vikna skoðun mæðraverndar. \nRannsóknarspurning fyrirhugaðrar rannsóknar, sem lögð eru drög af með þessari rannsóknaráætlun, er: getur fæðingarsamtal við frumbyrjur dregið úr fæðingarótta og aukið líkur á jákvæðri og valdeflandi upplifun fæðingar? \nHöfundar vonast til að í framhaldi af þessari rannsóknaráætlun verði fæðingarsamtal innleitt sem eitt af þeim viðfangsefnum sem ljósmóðir fer í gegnum í 25 vikna skoðun frumbyrja í mæðravernd. Fæðingarsamtalið hefur þarfir barnshafandi kvenna að leiðarljósi en það getur að auki dýpkað skilning og sýn heilbrigðisstarfsfólks á mikilvægi jákvæðrar fæðingarupplifunar því slík upplifun hefur langtímaáhrif á heilsu og vellíðan kvenna í samfélaginu. \nLykilhugtök: fæðingarótti, fæðingarsamtal, frumbyrja, heildræn hjúkrun og salutogenesis.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.003 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.007 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.004 | 0.006 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.006 | 0.015 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".