Geðsjúkdómar eru líka sjúkdómar : upplifun foreldra af mismun á þjónustu : fyrirbærafræðileg rannsókn á reynslu foreldra barna/unglinga með geðræn vandamál af stuðningi og stuðningsleysi af hálfu heilbrigðisþjónustunnar
Bibliographic record
Abstract
Foreldrar standa frammi fyrir mjög flóknum atriðum sem tengjast börnum og unglingum í nútímaþjóðfélagi og uppeldisaðferðir hafa mikið breyst vegna samfélagsþátta. Foreldrar barna og unglinga með geðræn vandamál þurfa því að takast á við mun stærra hlutverk þegar barn þess eða unglingur er að takast á við báða þessa þætti í einu. Allir sjúkdómar og veikindi raska jafnvægi fjölskyldunnar og rjúfa hefðbundin hlutverk hennar og hefur einnig mikil áhrif á systkini þennan tíma sem veikindaferlið gengur yfir. \nTilgangur þessarar rannsóknar var að kanna reynslu foreldra barna/unglinga með geðræn vandamál af stuðningi og stuðningsleysi af hálfu heilbrigðisþjónustunnar. Markmið rannsóknar-innar var að auka innsýn heilbrigðisstarfsmanna og annarra á þeirri upplifun og líðan foreldra þann tíma þegar barnið/unglingurinn var að veikjast og hvernig þeir upplifðu þjónustu heilbrigðisþjónustunnar fyrir og eftir greiningu sjúkdómsins. \nNotast var við fyrirbærafræðilega rannsóknaraðferð og stuðst við Vancouver skólann í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru tvennir foreldrar sem áttu barn/ungling með geðræn vandamál. Eitt viðtal var tekið við hvort foreldri, þau ritunnin og greind í þemu og nokkur undirþemu voru síðan greind útfrá þeim. Fyrirbærafræðilegar rannsóknir eru oft notaðar til þess að kanna mannlega reynslu með það að markmiði að bæta heilbrigðisþjónustuna. \nHelstu niðurstöður sýndu að foreldrum fannst að skortur á skipulagðri þjónustu til stuðnings fjölskyldna barna og unglinga með geðræn vandamál í litlum bæjarfélögum, hafi aukið álagið á fjölskylduna. Þeir upplifðu að stuðningurinn hafi verið stopull og lítill vegna þess að engin markmið voru til um þjónustuna sem veitt var. Þeim fannst stuðningleysið aðallega fólgið í því hlutleysi stjórnenda heilbrigðisþjónustunnar að vinna ekki að lausnum til meðferðaúrræða. Þeim fannst því mikill munur á þjónustu barna/unglinga með geðsjúkdóma miðað við aðra sjúkdóma.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.005 | 0.005 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.005 | 0.003 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.003 |
| Science and technology studies | 0.004 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.001 |
| Open science | 0.004 | 0.001 |
| Research integrity | 0.004 | 0.006 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.007 | 0.005 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".