Könnun á heilsulæsi fólks á biðlista eftir skurðaðgerð og prófun á fræðslubæklingi um verkjameðferð
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Verkir meðal skurðsjúklinga eru algengir og getur ónóg verkjastjórnun hægt á bataferlinu og skert lífsgæði. Þátttaka sjúklinga í verkjameðferð sinni stuðlar að betri verkjastillingu. Sjúklingar útskrifast nú fyrr heim af sjúkrahúsi en áður sem leiðir af sér aukna kröfu um þátttöku þeirra í sjálfsumönnun þegar heim er komið, til dæmis verkjameðferð. Því er mikilvægt að sjúklingar fái góða fræðslu um verkjameðferð áður en þeir útskrifast. Fræðsluþarfir fólks eru einstaklingsbundnar en mismunandi heilsulæsi fólks getur haft áhrif á hvernig það meðtekur fræðsluefni. \nTilgangur rannsóknar: Að tryggja gæði fræðslubæklings um verkjameðferð eftir skurðaðgerð á Landspítala sem þýddur var úr ensku yfir á íslensku og staðfærður með leyfi höfundar. Bæklingurinn ber heitið Pain relief after your surgery eða Verkjameðferð eftir skurðaðgerð og var upphaflega unninn af Dr. Judy Watt-Watson við Háskólann í Toronto, Kanada. Markmið rannsóknarinnar var að kanna heilsulæsi einstaklinga á biðlista eftir skurðaðgerð á Landspítala og kanna skilning hluta þeirra á innihaldi bæklingsins með aðferð ígrundaðra samtala. \nRannsóknarsnið og aðferð: Rannsóknin var tvískipt með blandaðri aðferð, annars vegar megindleg, lýsandi þversniðsrannsókn þar sem stuðst var við spurningalista og hins vegar eigindleg þar sem þátttakendur voru boðaðir í ígrunduð viðtöl. Þátttakendur voru einstaklingar á aldrinum 18-75 ára sem voru á biðlista almennra skurðlækninga fyrir valskurðaðgerð á Landspítala í febrúarmánuði 2018. Sendir voru spurningalistar um heilsulæsi til 101 einstaklings. Af þeim sem svöruðu spurningalistanum voru valdir sex einstaklingar með mismunandi heilsulæsi til þess að lesa yfir bækling um verkjameðferð eftir skurðaðgerð með aðferð ígrundaðra samtala. Unnið var úr gögnum fyrri hluta rannsóknar í tölfræðiforritunum Excel og SPSS og notast var við lýsandi tölfræði, fylgnistuðla, tíðnitöflur og óstikuð próf. Í seinni hluta var stuðst við PEMAT-matstækið við úrvinnslu viðtala. \nNiðurstöður: Þátttakendur sem svöruðu spurningalistanum um heilsulæsi voru 57 talsins. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að helmingur (50,0%) þátttakenda reyndist vera með fullnægjandi heilsulæsi en aðeins 7,4% með ófullnægjandi heilsulæsi. Ekki reyndist marktækur munur á heilsulæsi eftir kyni, aldri eða menntunarstigi þátttakenda. Viðtölin gengu vel og allir viðmælendur töldu fræðslubæklinginn um verkjameðferð eftir skurðaðgerð auðlesinn og hjálplegan. Flestar athugasemdir viðmælenda beindust að orðavali, textastíl og efnisinnihaldi textans. \nÁlyktanir: Í ljósi þess hve algengir verkir eftir skurðaðgerðir eru mætti gera það að stöðluðu verklagi að skurðsjúklingar fái skriflegt fræðsluefni um verkjameðferð með sér heim við útskrift. Mikilvægt er að miða fræðsluna út frá hverjum og einum. Fræðsluþarfir einstaklinga eru ólíkar og spilar heilsulæsi þar inn í. Heilsulæsi Íslendinga hefur lítið verið rannsakað hingað til. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að heilsulæsi einstaklinga á biðlista eftir skurðaðgerð sé í samræmi við niðurstöður evrópskra rannsókna á heilsulæsi almennings. Gagnlegt væri að kanna það nánar með stærri rannsókn þar sem tekið væri stærra og fjölbreyttara úrtak. Sú aðferð að nota ígrunduð samtöl við þróun á fræðsluefni reyndist vel til þess að bæta gæði fræðslubæklingsins sem prófaður var. Niðurstöðurnar sýna að fræðslubæklingurinn virðist henta einstaklingum með mismunandi heilsulæsi. Það er mat rannsakenda að bæklingurinn sé tilbúinn til notkunar ef gerðar eru lítilsháttar lagfæringar. Ef horft er til framtíðar gæti þessi aðferð ígrundaðra samtala nýst vel við þróun á nýju fræðsluefni. \nLykilorð: Verkir skurðsjúklinga, sjúklingafræðsla, heilsulæsi, ígrunduð samtöl.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.003 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.002 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.003 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.005 | 0.011 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".