Áhrif hjúkrunarmeðferðar á svefnvenjur 0-2ja ára barna með svefnvanda og á skynjaðan stuðning mæðra
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Talið er að um 25-40% 0-2ja ára barna glími við svefnvanda. Sýnt hefur verið fram á að svefnvandi barna hefur bein tengsl við auknar líkur á hegðunarvanda, félags- og tilfinningalegum vanda sem og offitu barna síðar á lífsleiðinni. \nTilgangur: Tilgangur var tvíþættur. Annars vegar að kanna áhrif íhlutunar hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu í formi sérhæfðrar hjúkrunarmeðferðar til mæðra 0-2ja ára barna með svefnvanda, á þann stuðning sem þær fá frá hjúkrunarfræðingunum. Hins vegar að kanna áhrif íhlutunar hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu í formi sérhæfðrar hjúkrunarmeðferðar til mæðra 0-2ja ára barna með svefnvanda á svefn barnanna. \nAðferð: Gerð var framskyggn íhlutunarrannsókn án samanburðarhóps með einshópa hálfstöðluðu tilraunasniði. Úrtakið var markmiðsúrtak, 35 mæður 0-2ja ára barna, sem allar höfðu tjáð sig um svefnvanda barna sinna í hefðbundinni ungbarnavernd. Sérhæfða hjúkrunarmeðferðin sem mæðrum var boðin fól í sér tvö meðferðarsamtöl ásamt einni símaeftirfylgd. Skoðaðar voru niðurstöður frá mæðrunum úr matslista (ICE-FPSQ) sem metur hugrænan og tilfinningalegan stuðning sem mæðurnar upplifðu frá hjúkrunarfræðingunum fyrir og eftir íhlutun og hins vegar niðurstöður um svefn barna þeirra fyrir og eftir íhlutun. Við úrvinnslu gagna var hvort tveggja notuð lýsandi tölfræði og gerð t-próf háðra úrtaka og kí-kvaðrat próf til að skoða marktækni. \nNiðurstöður: Við samanburð á stuðningi hjúkrunarfræðinganna fyrir og eftir íhlutun kom í ljós marktækur munur (p<0,05) á hugrænum og tilfinningalegum stuðningi, sem og á heildarstuðningi sem mæðurnar upplifðu frá hjúkrunarfræðingunum eftir íhlutunina. Íhlutunin hafði einnig mjög jákvæðar breytingar á svefnvenjur barnsins. Barnið sofnaði oftar í sínu rúmi, sofnaði oftar sjálft, færri börn vöknuðu hverja nótt (p<0,05), barnið vaknaði færri nætur yfir vikuna (p<0,05) og vaknaði í færri skipti hverja nótt fyrir sig (p<0,05). \nÁlyktanir: Þessar rannsóknarniðurstöður gefa tilefni til að álykta að sérhæfð hjúkrunarmeðferð til mæðra barna með svefnvanda bæti svefn barnanna ásamt því að hafa áhrif á og bæta upplifun þeirra af stuðningi frá hjúkrunarfræðingunum. \n \nLykilorð: svefnvandi, fjölskylduhjúkrun, sérhæfð hjúkrunarmeðferð, Calgary-fjölskylduhjúkrunarlíkan, meðferðarsamtöl, tilfinningalegur stuðningur, hugrænn stuðningur.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.004 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.001 |
| Research integrity | 0.002 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.004 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".