Ávinningur fjölskyldumeðferðarsamtals á meðgöngu- og sængurkvennadeild á virkni fjölskyldna með fyrirbura á vökudeild
Bibliographic record
Abstract
Náttúrulegt ferli barneigna reynir á aðlögunarhæfni foreldra og annarra fjölskyldumeðlima að breyttu hlutverki og ábyrgð. Þegar foreldrar eignast fyrirbura sem þarf jafnvel að liggja svo vikum skiptir á vökudeild verða þeir fyrir ákveðinni röskun á aðlögun á foreldrahlutverkinu. Umönnun af hálfu ljósmæðra í sængurlegu á foreldrum fyrirbura á vökudeild hefur lítið verið rannsökuð. \nHugmyndafræðilegur rammi rannsóknarinnar var Calgary fjölskyldumats- og meðferðarlíkanið. Líkanið lýsir tengslum milli fjölskyldna og hjúkrunarfræðinga með aðaláherslu á starfsemi fjölskyldunnar, samskipti milli fjölskyldumeðlima og þeirrar meðferðar sam framkvæmd er af hjúkrunarfræðingum. \nTilgangur rannsóknarinnar var að meta ávinning af fjölskyldu¬hjúkrunar-meðferð í starfi ljósmóður. Meðferðin felst í stuttu meðferðarsamtali sem fer fram á meðgöngu- og sængurkvennadeild Landspítala. Leitast var við að svara tveimur rannsóknarspurningum: Hver er munurinn á upplifaðri tilfinningalegri fjölskylduvirkni mæðra og feðra fyrir meðferðarsamtal annars vegar og aftur þremur dögum eftir meðferðarsamtalið? Veitir hugmyndafræði Calgary fjöl¬skyldu¬hjúkrunar rannsakanda ákjósanleg verkfæri til þess að afla upplýsinga á skilvirkan og markvissan hátt, sýna nærgætni og ígrunda vel samtöl við fjölskyldumeðlimi í barneignaferlinu? \nÍ þessari megindlegu rannsókn er stuðst við aðlagað tilraunasnið með fyrir- og eftirprófi. Upplýsinga var aflað um bakgrunn þátttakenda og þeir svöruðu spurningalista um tilfinningalega virkni fjölskyldna fyrir hjúkrunarmeðferðina og aftur þremur dögum síðar. Þátttakendur rannsóknarinnar voru átján foreldrar í sængurlegu sem áttu fyrirbura á vökudeild, níu mæður (n=9) og níu feður (n=9). Hjúkrunarmeðferðin fólst í einu stuttu meðferðarsamtali sem tók að meðaltali 37 mínútur. \nHelstu niðurstöður voru þær að feður upplifuðu marktækt minni tilfinningalega virkni fjölskyldunnar eftir meðferðarsamtalið en fyrir það. Ekki var marktækur munur á upplifun mæðra á tilfinningalegri virkni fjölskyldunnar fyrir og eftir meðferðarsamtlið. \nVið framkvæmd þessarar meðferðarrannsóknar hefur þekking og reynsla áunnist sem mögulega verður nýtt til að þróa meðferðarsamtöl ljósmæðra við umönnun foreldra í sængurlegu. Rannsóknin gefur vísbendingu um mikilvægi þess að rannsaka frekar reynslu foreldra í sængurlegu sem eiga fyribura á vökudeild og þörf þeirra fyrir stuðning og fræðslu af hálfu ljósmæðra. \nLykilorð: Foreldrar, fyrirburi, sængurlega, ljósmóðir, fjölskylduhjúkrun, fjölskylduvirkni, meðferðarsamtal.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.003 | 0.003 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.004 | 0.002 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.003 | 0.004 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.015 | 0.004 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".