Ferlihjálpartæki barna með hreyfihamlanir: Notkun, ánægja og áhrif
Bibliographic record
Abstract
Inngangur: Hjálpartæki bæta færni einstaklinga með fatlanir og draga úr áhrifum hindrana í umhverfi við þátttöku þeirra. Ferlihjálpartæki, t.d. göngugrindur og hjólastólar, eru algeng fyrir börn með hreyfihamlanir. Fáar rannsóknir eru til um notkun og áhrif þeirra á þátttöku og hérlendis hefur ekki verið gerð könnun á ánægju barna með hreyfihamlanir með hjálpartæki og þjónustu tengda þeim. \nMarkmið: Að kanna notkun og áhrif ferlihjálpartækja meðal barna með hreyfihamlanir ásamt því að meta ánægju þessara barna og fjölskyldna þeirra með tækin og þjónustu tengda þeim; jafnframt að afla þekkingar sem getur verið leiðbeinandi við val á hjálpartækjum og benda á mögulegar úrbætur á þjónustu. \nAðferðafræði: Rafræn könnun var send til foreldra barna með hreyfihamlanir. Börnin voru á aldrinum 6-18 ára og notuðust við ferlihjálpartæki. Spurningalisti var þróaður fyrir þessa rannsókn til þess að meta notkun og áhrif ferlihjálpartækja. Ánægja með eiginleika ferlihjálpartækja og þjónustu í tengslum við þau var mæld með Quebec user evaluation of satisfaction with assistive technology (QUEST) 2.0-spurningalistanum. \nNiðurstöður: Svarhlutfall var 61,8% (n=34). Meirihluti barnanna notaði ferlihjálpartæki í aðstæðum í tengslum við skóla og í félagslegum aðstæðum. Ferlihjálpartækin höfðu að mestu leyti jákvæð áhrif á athafnir og þátttöku barnanna, neikvæð áhrif voru minniháttar. Ekki var marktækur munur á ánægju eftir gerð ferlihjálpartækis. Munur á ánægju þátttakenda með eiginleika ferlihjálpartækis annars vegar og þjónustuna hins vegar var ekki marktækur, óháð gerð hjálpartækis. Meirihluti þátttakenda var ánægður með stærð, öryggi og gagnsemi ferlihjálpartækja en flestir voru óánægðir með þyngd og stillingar. Flestir voru ánægðir með þjónustuna, nema eftirfylgni. \nÁlyktanir: Þátttakendur notuðu ferlihjálpartæki mikið og höfðu þau jákvæð áhrif á athafnir og þátttöku þeirra. Meirihluti þátttakenda var ánægður með tækin og þjónustu í tengslum við þau en ýmsa þætti mætti bæta. Þörf er á frekari rannsóknum á þessu sviði til að útvegun ferlihjálpartækja fyrir börn með hreyfihamlanir byggi á gagnreyndri nálgun.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.002 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.003 | 0.001 |
| Research integrity | 0.004 | 0.007 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.009 | 0.023 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".