„Eðlilegt er svo afstætt: Það er ekki eitthvað eitt eðlilegt.“ Reynsla kvenna af eðlilegri fæðingu: Eigindleg fyrirbærafræðileg rannsókn
Why this work is in the frame
A frame that forgets how it found something cannot be audited. These are the routes that admitted this work.
Bibliographic record
Abstract
Verndun eðlilegra fæðinga hefur verið fyrirferðarmikið viðfangsefni innan ljósmóðurfræða síðustu áratugi. Þar er iðulega stillt upp mismunandi sýn læknisfræðinnar og ljósmóðurfræðinnar en sjónum sjaldnar beint að upplifun kvenna sjálfra af eðlilegum fæðingum. Í þessari rannsókn eru konur spurðar um þeirra eigin sýn. Rannsóknarspurningin sem lögð er til grundvallar er: Hver er reynsla kvenna af eðlilegum fæðingum? \nAðferðarfræði rannsóknarinnar er eigindleg og byggist á viðtölum við tíu konur, fjölbyrjur og frumbyrjur, sem eiga samtals nítján fæðingar að baki. Viðtölin eru greind með fyrirbærafræðilegri aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. \nVið heildargreiningu á fyrirbærinu eðlileg fæðing er unnið úr reynslu allra kvennanna og spunninn sameiginlegur vefur. Undirstöðuþemað við úrvinnslu á sögum kvennanna er Að gera fæðingarreynsluna að sinni eðlilegu fæðingu. Í þeirri ferð er fólgin óvissa, þar sem eðlilegt er að fá hjálp, en ef vel tekst til felast í reynslunni tækifæri til valdeflingar. Auk þess koma í ljós sjö yfirþemu sem áfram eru sameiginlega rakin í undirþemu. Öll hafa þau áhrif innbyrðis á heildarupplifun og lýsingu á fyrirbærinu eðlileg fæðing. Þessi þemu eru eftirfarandi: að hafa stjórn, stuðningur ljósmóður, sameiginlegt verkefni, öryggi og umhverfi, reynsla af sársauka, að taka á móti eigin barni, ekki eðlileg fæðing – þegar fæðingin er ekki lengur í eigin höndum. \nÍ skilgreiningum fagfólks á eðlilegri fæðingu hafa andstæðurnar „inngrip“ og „ekki inngrip“ jafnan legið til grundvallar. Í hugum þeirra kvenna sem hér er rætt við er þessi tvískipting hins vegar ekki útgangspunktur eðlilegrar fæðingar. Allar konurnar líta svo á að þær eigi eðlilega fæðingu að baki – jafnvel náttúrulega fæðingu – þrátt fyrir fjölbreytt inngrip og ólíkar fæðingarsögur. Sýn þessara kvenna brýtur á vissan hátt upp hugtakið eðlileg fæðing eins og það hefur hingað til verið skilgreint. Sjónarhorn þeirra styður okkur ljósmæður í að leggja einstaklingsbundnari skilning á mörk hins eðlilega, treysta á innsæisþekkingu og mæta konum á þeirra eigin forsendum í fæðingu. \n \n \nLykilorð: Eðlileg/náttúruleg fæðing, fæðingarreynsla kvenna, umönnun ljósmæðra, fyrirbærafræðileg nálgun.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.019 | 0.008 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.004 | 0.004 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.004 | 0.002 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.006 |
| Science and technology studies | 0.004 | 0.002 |
| Scholarly communication | 0.002 | 0.002 |
| Open science | 0.005 | 0.001 |
| Research integrity | 0.005 | 0.008 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.005 | 0.006 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from it