"Frá fyrstu tíð þarf að halda vel utan um barnið" : reynsla umsjónarkennara í 3. bekk af kennslu nemenda með lestrarerfiðleika
Bibliographic record
Abstract
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna reynslu umsjónarkennara í 3. bekk af kennslu nemenda með lestrarerfiðleika. \nRannsóknin var gerð á árunum 2009-2012 og var aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði fylgt. Þátttakendur voru fimm umsjónarkennarar í 3. bekk. Rætt var við hvern þeirra tvisvar, vorið 2009 og aftur vorið 2012. Rannsóknarspurningarnar voru: \n•\tHver er reynsla fimm umsjónarkennara í 3. bekk af kennslu nemenda með lestrarerfiðleika? \n•\tHvað telja kennararnir að efli möguleika þeirra til að mæta þörfum nemenda með lestrarerfiðleika og hvað telja þeir að hafi hamlandi áhrif á það? \nHelstu niðurstöður voru þær að þátttakendur sögðu að fræðslu um lestrarerfiðleika hafi verið ábótavant í grunnnámi þeirra en að þeir hafi öðlast þekkingu með aukinni starfsreynslu og með markvissum vinnubrögðum sem skólarnir sem þeir starfa við hafa lagt áherslu á. Fjöldi nemenda í bekkjum var það mikill að kennararnir töldu sig ekki hafa nægjanlegt svigrúm til þess að sinna nemendum með lestrarerfiðleika eins vel og þeir myndu kjósa. Kennararnir töldu einkenni lestrarerfiðleika skýr strax á fyrstu misserum grunnskólagöngunnar og að fljótt þurfi að bregðast við þeim með markvissri kennslu og hvatningu þannig að nemendur missi ekki áhugann á lestrarnáminu. Árangursríkustu leiðirnar til þess voru að mati þátttakenda að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og fjölbreytt námsefni ásamt því að eiga gott samstarf við foreldra. Kennararnir sögðu að mikilvægi heimilanna væri ótvírætt og að heimanám í lestri þurfi að vera ánægjuleg athöfn en ekki kvöð. \nNiðurstöður vekja spurningar um hvernig hægt sé að hlúa að kennurum og nemendum á fyrstu árum grunnskólans þannig að hægt sé að mæta þörfum ólíkra nemenda í læsisnámi. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á reynslu kennara á þessu sviði og því ætti helsti ávinningur rannsóknarinnar að vera sjónarhorn þeirra á aðstæður og það má hafa til hliðsjónar þegar hugað er að úrbótum á innra starfi grunnskóla eða menntun kennara.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.003 | 0.003 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.003 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.013 | 0.011 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".