Kynferðisleg misnotkun og önnur sálræn áföll í æsku og áhrif þeirra á heilsufar og líðan kvenna
Bibliographic record
Abstract
Rannsóknir sýna að börn sem verða fyrir ýmsu ofbeldi eða kynferðislegri misnotkun upplifa mikla vanlíðan, eru með geðræn vandamál, lélega sjálfsmynd og sjálfsvígshugsanir. Á fullorðinsárum koma fram ýmis líkamleg, geðræn og félagsleg vandamál og einstaklingar leita mikið í heilbrigðisþjónustuna. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna heilsufar og líðan kvenna sem hafa orðið fyrir sálrænum áföllum í æsku, eins og kynferðislegri misnotkun og öðru ofbeldi. Rannsóknaraðferðin var fyrirbærafræðileg, eigindleg og kennd við Vancouver-skólann. Tekin voru samtals 14 viðtöl við sjö konur á aldrinum 30-65 ára sem höfðu slíka sögu og höfðu leitað sér aðstoðar í heilbrigðiskerfinu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að sálræn áföll í æsku, eins og kynferðisleg misnotkun og ofbeldi, hafa mjög alvarlegar afleiðingar. Þeim var skipt í sex megin þemu: 1) Upplifun af áfallinu, þar sem konur ýmist lokuðu á sára reynslu, fóru útúr líkamanum eða upplifðu ,,sálarmorð”. 2) Slæm líðan sem barn og unglingur þar sem þær lýsa allar mikilli vanlíðan, voru með geðræn og líkamleg einkenni og voru berskjaldaðar fyrir endurteknu ofbeldi. 3) Líkamleg einkenni sem þær voru þjakaðar af á fullorðinsárum eins og móðurlífsvandamál, útbreiddir verkir, vefjagigt og eru fimm þeirra öryrkjar sökum þess. 4) Geðræn vandamál sem hafa þjakað þær allt lífið með kvíða, þunglyndi, sjálfsvígshugsunum og sjálfsvígstilraunum. 5) Erfiðleikar við tengslamyndun, traust og snertingu, en þeim hefur gengið mjög illa að tengjast maka og börnum og átt erfitt með snertingu og kynlíf. 6) Staðan í dag og horft til framtíðar. Allar konurnar þróuðu með sér einkenni áfallaröskunar, lifa við mikla vanlíðan í dag, eru oft fullar vonleysis og finnst þær vera að gefast upp á lífinu. Mikilvægt er að efla fræðslu til fagfólks svo það geti greint einkenni og hugsanlegar afleiðingar, brugðist rétt við og veitt stuðning.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame machine prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. The Gemma side is a direct model label for every work in the frame, read from the title-only record. The Codex side is a classifier learned from the 10,348 direct Codex labels and calibrated to design-weighted sample rates; fields without enough sample support carry no Codex call. Candidate is the union of the two sides; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels.
Distilled classifier scores by category (both heads)
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.003 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.003 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.004 |
| Research integrity | 0.001 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.115 | 0.047 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; a candidate call from one source (direct Gemma or distilled Codex), not a consensus.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".