Ánægja aðstandenda með umönnun á gjörgæsludeild: Forprófun mælitækis
Bibliographic record
Abstract
Einn af gæðavísum gjörgæslu er ánægja aðstandenda með þjónustuna. Mikilvægt er að mæla hana með staðfærðum mælitækjum en slíkt mælitæki er ekki til hér á landi. Meginmarkmið og tilgangur þessa rannsóknarverkefnis var að þýða, staðfæra og forprófa mælitækið: Ánægja aðstandenda með umönnun á gjörgæsludeild (e. Family Satisfaction with Care in the Intensive Care Unit, FS-ICU (24)) á íslenskum gjörgæsludeildum og nota niðurstöður forprófunarinnar til að meta notagildi hans við íslenskar aðstæður. Fræðilegar heimildir um upplifun aðstandenda af gjörgæsludeildum voru kannaðar með það að markmiði að kanna samræmi milli þeirra og niðurstaðna forprófunarinnar. Með þeim samanburði átti að meta notagildi mælitækisins á íslenskum sjúkrahúsum. \nVið þýðingu spurningalistans yfir á íslensku var stuðst við aðferðir MAPI-stofnunarinnar. Þýðingarferlið var tímafrekt en gekk vel og voru smávægilegar breytingar gerðar frá upprunalega spurningalistanum á orðalagi og uppbyggingu spurninga. Endanlegu drögin að spurningalistanum innihalda 29 spurningar auk sex bakgrunnsspurninga. \nGerð var megindleg lýsandi þverskurðarrannsókn við forprófun spurningalistans sem fram fór í apríl 2014. Hentugleikaúrtak tólf aðstandenda sjúklinga sem lágu inni (> 48 klst) á gjörgæsludeildum Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi svöruðu spurningalistanum og var tölfræðiforritið SPSS notað við úrvinnslu gagna. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að almennt gekk þátttakendum vel að svara spurningalistanum. Við úrvinnslu gagnanna komu í ljós nokkur atriði sem hafa þarf í huga við gerð endanlegu útgáfu spurningalistans en þau voru uppröðun og orðalag vissra svarmöguleika og þörf á fleiri svarmöguleikum við ákveðnum spurningum. Ánægja þátttakenda var mikil með veitta umönnun, samskipti og umhverfi gjörgæslunnar, en jafnframt ríkti viss óánægja með umfang stjórnar yfir meðferð sjúklings. Þessar niðurstöður eru í samræmi við fyrri rannsóknir á efninu sem staðfestir gildi mælitækisins. Þörf er á að lagfæra þær athugasemdir sem upp komu við svörun spurningalistans og framkvæma stærri rannsókn til að fá betra alhæfingargildi svo hægt verði að nota niðurstöður til að bæta gæði þjónustunnar við gjörgæslusjúklinga og aðstandendur þeirra. \n \nLykilorð: FS-ICU 24, ánægja, aðstandendur, umönnun, gjörgæsludeild, mælitæki, spurningalisti, forprófun, fjölskylduhjúkrun, Calgary hugmyndafræði, umhverfi, QODD, HADS.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.008 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.003 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.004 | 0.005 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.006 | 0.010 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".