Fjölskylduhjúkrun: Hvað má betur fara?
Bibliographic record
Abstract
Tilgangur: Heimildarsamantekt þessi er lokaverkefni til BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða fjölskylduhjúkrun, hvernig henni er beitt af hjúkrunarfræðingum og upplifun ættingja langveikra á því að fá fjölskylduhjúkrun. Við veltum því fyrir okkur hver áhrifaríkasta leiðin er til að hjúkra allri fjölskyldunni. Rannsóknarspurningar sem hafðar voru til hliðsjónar í samantektinni: Hvernig er fjölskylduhjúkrun veitt af hjúkrunarfræðingum inn á deildum sem langveikir sjúklingar liggja inn á? Hvaða þættir eru mikilvægir til að hjálpa ættingjum í gegnum erfitt veikindaferli? Hvaða hindranir eru sem koma í veg fyrir að henni sé beitt? \nAðferðarfræði: Gögnum var safnað saman úr gagnagrunnum rafrænt. Notuð voru leitarorð sem voru chronic illness, fjölskylduhjúkrun (family nursing), samskipti, fræðsla, fjölskylduviðtal, Calgary líkanið, stuðningur, krónísk veikindi og fjölskylda. Notaðar voru 53 heimildir, rannsóknir og tímaritsgreinar úr þekktum hjúkrunarfræðitímaritum til að fræðast um efnið sem er tilekið hér fyrir ofan. Einnig var notast við bækur sem fjölluðu um fjölskylduhjúkrun.Til að dýpka skilning okkar á hvernig fjölskylduhjúkrun var veitt voru tekin viðtöl við tvo langveika einstaklinga og fjölskyldur þeirra og reynt að fá upplifun þeirra á því að fá fjölskylduhjúkrun. Einnig voru tekin viðtöl við þrjá hjúkrunarfræðinga sem höfðu reynslu af því að veita fjölskylduhjúkrun í starfi. \nNiðurstöður: Í viðtölum sem tekin voru við fjölskyldumeðlimi tjáðu þeir sig um mikilvægi þess að hafa fjölskyldufundi oftar og fá að vera með í umönnun þess veika. Hjúkrunarfræðingarnir sem talað var við ræddu einnig mikilvægi þess að veita fjölskylduhjúkrun, sögðu að hún væri tímasparandi og hjálpaði ættingjum til þess að líða betur. Það að setjast niður með fjölskyldumeðlimum og taka við þá stutt viðtal, veita þeim upplýsingar, fá þau til að segja frá sinni líðan, leyfa þeim að spyrja að því sem óvissa væri með og taka niður mikilvægar upplýsingar í leiðinni, skiptir miklu máli. Með þessu er verið að mynda meðferðarsamband og skapa grundvöll til að ná fram breytingum. Enn sem komið er vantar hins vegar að innleiða fjölskylduhjúkrun enn frekar inn á deildir sjúkrahúsa á Íslandi. Heimildirnar sem notaðar voru í þessari heimildasamantekt undirstrikuðu líka mikilvægi þess að veita fjölskylduhjúkrun, bjóða upp á fjölskylduviðtal og að hafa ættingja með í hjúkrun síns nánasta. \nÁlyktun: Mikilvægt er að fjölskyldan öll fái hjúkrun. Hjúkrunarfræðingar geta boðið fjölskyldumeðlimum upp á viðtal þar sem þau geta sagt frá hvernig þeim líður, fá upplýsingar og fá spurningum sínum svarað.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.000 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.000 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.001 | 0.005 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".