Grenndarbrot í lærbeini við mjaðmargervilið á Landspítala 2010-2019
Bibliographic record
Abstract
Inngangur: Þjóðin er að eldast, öldrunarbrotum og gerviliðum að fjölga svo að grenndarbrot í lærbeini hjá fólki með mjaðmargervilið kemur líklegast til með að vera vaxandi vandamál í framtíðinni. \nLang flest þessara brota þarf að meðhöndla með skurðaðgerð og getur þá gerviliðurinn aukið flækjustig aðgerðarinnar miðað við lærbrot hjá fólki sem er án gerviliðs. Brotin eru flokkuð eftir Vancouver-flokkunarkerfinu. Markmið rannsóknarinnar var að safna faraldsfræðilegum gögnum um einstaklinga með þessi brot, skoða aðgerðartækni sem er beitt á Íslandi og tengja hana við Vancouver-flokkun brotsins og skoða lifun m.t.t. kyns og blóðgilda. \nEfniviður og aðferðir: Gerð var afturskyggn rannsókn á einstaklingum sem voru greindir með slík lærbeinsbrot og teknir til aðgerðar á Landspítala á árunum 2010-2019. Upplýsingar voru fengnar frá vöruhúsi gagna á Landspítala og í sjúkrarskrárkerfinu Sögu. Röntgenmyndir voru yfirfarnar, einnig af sérfræðingi til að staðfesta flokkun brots (AG, B1, B2, B3, C) og íhluti (gerviliður, plata, vírar). \nTölfræðiúrvinnsla var unnin í Rstudio. \nNiðurstöður: Heildarfjöldi varð 148, 56 tilfelli tilheyrðu körlum og 92 konum. Meðalaldur við brot var 80.1 ár. Tíu menn dóu innan árs (17.9%) en 15 konur (16.3%); yfir heildina dóu 25 innan árs (16.9%). Vancouver flokkun brotanna skiptist þannig að 3 (2%) flokkuðust sem AG, 45 (30.4%) sem B1, 47 (31.8%) sem B2, 3(2%) sem B3 og 50 (33.8%) sem C. Þau brot sem voru meðhöndluð með nýjum gervilið án/með plötu til stuðnings voru: AG - 66.6% (33.3%/33.3%), B1 - 28.9% (20%/8.9%), B2 - 72.3% (46.8%/25.5%), B3 - 66.6% (33.3%/33.3%), C - 2% (0%/2%). Þau brot sem eftir standa voru meðhöndluð með plötu og/eða cerclage vír. Af þeim sem dóu innan árs höfðu 84% hemoglobin undir viðmiðunargildum (p = 0.057) og er það marktækt við 94% marktæknikröfu, 54.2% af þeim sem dóu höfðu kreatinin yfir viðmiðunargildum (p = 0.002). \nÁlyktanir: U.þ.b. 15 einstaklingar koma með grenndarbrot í lærbeini við mjaðmargervilið á ári á Landspítalann. Konur eru u.þ.b. tvisvar sinnum fleiri en karlar en ekki er marktækur munur á dánartíðni milli kynjanna. Aðgerðartækni á Íslandi passar í flestum tilvikum við það sem Vancouver flokkunin mælir með og þegar það passar ekki eru útskýringar til staðar. Tengsl eru á milli lágs hemoglobins og dánartíðni innan árs og einnig hás kreatinins og dánartíðni innan árs.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.003 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.013 | 0.004 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".