Nutrition, intestinal permeability, and mental- and neurodevelopmental disorders in children
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Algengi geð- og taugaþroskaraskana meðal barna út um allan heim er að aukast og er talið vera á bilinu 13%-22% en fer það eftir um hvaða ríki er að ræða. Á heimsvísu er algengi athyglisbrests og ofvirkni (e. attention deficit hyperactivity disorder (ADHD)) á meðal fullorðinna, u.þ.b. 3%, einhverfu (autism spectrum disorder (ASD)) 0,6% og áráttu-þráhyggjuröskunnar (obsessive-compulsive disorder (OCD)) 2,3%. Rannsóknir á samspili geðheilsu, heilbrigði þarma, gegndræpi þarma og mataræðis eru í brennidepli. \nMarkmið: Ritgerðin er byggð á gögnum úr nýlegri kerfisbundinni samantekt á athugunarrannsóknum (observational studies) á gegndræpi þarma, á börnum greind með ADHD, ASD eða OCD. Meginmarkmið er að vega og meta hvað sé vitað um samspil á áhrifum næringar á þarmaflóru/gegndræpi þarma í tengslum við geðraskanir á borð við ADHD, ASD og OCD. \nAðferðir: Meistaraverkefnið var hluti af kerfisbundinni samantekt (systematic review) og vinna við yfirlitsferlið var framkvæmt í samráði við leiðbeinanda og annan yfirlesara. Val á greinum byggði á því að sameina leitir úr mismunandi gagnasöfnum miðað við innköllunar viðmiðið í rannsóknaráætlun leiðbeinanda. Rannsóknir sem voru gjaldgengnar í kerfisbundnu samantektina voru athugunarrannsóknir (observational studies) á börnum undir 18 ára aldri og greind með geðraskanir og lífmerki fyrir gegndræpi þarma t.d. zonulin og heilbrigð viðmið til samanburðar. Aðferðir fylgdu PRIMSA flæðiritinu og því hvernig kerfisbundnar samantektir eru unnar og var farið eftir stöðluðum reglum í þeirri vinnu. Fyrst var framkvæmd kerfisbundin leit að greinum sem greint er frá í meðfylgjandi rannsóknaráætlun (protocol). Gögnum var safnað úr greinum og gert var gæðamat með aðstoð Newcastle Ottawa skalans. Samantekt á niðurstöðum (meta-analysis) var framkvæmd á fjórum rannsóknum og meðaltali zonulin styrks í serumi. \nNiðurstöður: Alls komu 833 greinar upp við leit og titlar og útdrættir voru metnir. Skimaðar voru alls 14 birtar greinar og valdar voru 5 greinar til mats á texta til kerfisbundinnar samantektar. Allar rannsóknirnar reyndust vera tilfella-viðmiða rannsóknir (case-control studies) og voru framkvæmdar frá 2016-2019. Fimm af rannsóknunum sem fór í gegnum gæðamat innihéldu börn undir 18 ára aldri, þar sem zonulin og önnur lífmerki höfðu verið rannsökuð og tilfelli borin saman við heilbrigð viðmið. Tvær af rannsóknunum greindu frá breytingum á zonulin styrk hjá börnum með ASD og ein ADHD. Samantekt á niðurstöðum leiddi í ljós marktækan mun á mili meðalstyrk zonulins milli tilfella og viðmiðshóps. \nÁlyktun: Meistaraverkefnið bætir við fræðin varðandi geð- og taugaþroskarasaknir, gegndræpi þarma, þarmaflóru, zonulin og hvert hlutverk þáttana er í þessum röskunum. Fáar rannsóknir hafa rannsakað breytingar á gegndræpi þarma, zonulin styrk, matarræði og einkenni geðraskana. Framtíðar rannsóknir ættu að beina sjónum sínum að geðröskunum og fæðumynstri.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.000 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.000 | 0.000 |
| Research integrity | 0.000 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.000 | 0.000 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; a candidate call from one teacher head, not a consensus.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".