„Þetta er svona sorg og gleði“ : þróun vinnustaðamenningar íslenskra fjölmiðla með auknum fjölda kvenna sem starfa á ritstjórnum
Bibliographic record
Abstract
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvernig fjölmiðlafólk lýsir vinnustaðamenningu íslenskra fjölmiðla og hvernig hún hefur þróast síðustu áratugi, allt aftur til sjötta áratugarins. Margvíslegar breytingar hafa átt sér stað á þessu tímabili en rannsóknin beindi sjónum sínum meðal annars að þeim breytingum sem fylgdu auknum fjölda kvenna sem starfa á ritstjórnum. Rannsóknin byggir á eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem tekin voru hálf-opin viðtöl í anda Vancouver skólans. Einnig var hugmyndafræði tveggja femínískra rannsóknaraðferða hafðar að fyrirmynd. Tekin voru 18 viðtöl við karla og konur, til jafns, af þremur mismunandi kynslóðum. Viðmælendur voru spurðir út í upplifanir sínar af vinnustaðamenningu þeirra fjölmiðla sem þeir hafa starfað fyrir. Þar að auki hvaða utanaðkomandi öfl hafa haft áhrif á vinnustaðamenninguna, hvað hafi breyst með auknum fjölda kvenna og hver staða þeirra sé í dag. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að eldri kynslóðirnar séu ánægðari í sínu starfi. Ákveðinn viðhorfsmunur er milli kynslóða og greina má áhrif eldri og yngri á miðkynslóðina. Lýðræði ritstjórna hefur aukist með nútímalegri stjórnunarstíl. Framkoma inn á ritstjórnum hefur mýkst og mun meiri meðvitund er meðal fjölmiðlamanna um áhrif álags, áfalla og andlegrar líðan, en þetta gerðist í kjölfar aukins fjölda kvenna og yngri kynslóða. Staða kvenna hefur batnað til muna og flestir upplifa tækifæri kynjanna til starfsframa nokkuð jöfn. Þær virðast eiga auðveldara með komast í stjórnunarstöður ef þær sækjast eftir því. Enn er kynjahalli á ritstjórnum en nokkrar þeirra vinna markvisst að því að jafna hann út. Margt má bæta, til dæmis mætti halda betur utan um fólk þegar það lendir í áföllum sem geta fylgt starfi. Það mætti einnig styðja betur við ungt fólk sem er að taka sín fyrstu skref í fjölmiðlum, enda mikið álag og áreiti sem fylgir starfinu sem tekur tíma að venjast. Vinnutími fjölmiðlamanna er teygjanlegur og krefst sveigjanleika sem og laun því margir vinna launalaust til að taka þátt og missa ekki af. Flestir eru ánægðir í starfi sínu en starfið er erfitt og skemmtilegt og því fylgir ýmist sorg eða gleði. \nLykilhugtök: Vinnustaðamenning, fjölmiðlafólk, fjölmiðlar, þróun, álag, konur, húmor
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame machine prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. The Gemma side is a direct model label for every work in the frame, read from the title-only record. The Codex side is a classifier learned from the 10,348 direct Codex labels and calibrated to design-weighted sample rates; fields without enough sample support carry no Codex call. Candidate is the union of the two sides; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels.
Distilled classifier scores by category (both heads)
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.000 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.005 | 0.002 |
| Scholarly communication | 0.005 | 0.002 |
| Open science | 0.001 | 0.005 |
| Research integrity | 0.002 | 0.004 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.118 | 0.052 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; a candidate call from one source (direct Gemma or distilled Codex), not a consensus.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".