„Ég hef vitað um arfleifð mína alla mína ævi.“ Vestur-íslenskur menningararfur
Bibliographic record
Abstract
Ritgerð þessi er lokaverkefni til MIS gráðu í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Hún greinir frá eigindlegri rannsókn sem framkvæmd var meðal Vestur-Íslendinga í Manitoba og Saskatchewan í Kanada og Norður-Dakota í Bandaríkjunum. Tekin voru sex viðtöl við Vestur-Íslendinga og gerð var þátttökuathugun á Íslendingahátíð í Norður-Dakota. Markmið rannsóknarinnar var að skoða íslenskan menningararf Vestur-Íslendinga og athuga hverju hefur verið viðhaldið og hvernig honum hefur verið miðlað milli kynslóða. Í framhaldi af því var skoðað hvernig menningararfurinn hefur mótað sjálfsmynd þeirra. \nRannsóknin segir frá mismunandi upplýsingaþörf Vestur-Íslendinga er tengist ætterni þeirra og uppruna og hvernig þeir fá þeirri þörf svalað. Upplýsingasvæði myndast meðal þeirra á mismunandi hátt þar sem ýmsum upplýsingum og fróðleik er miðlað á milli. Sá menningararfur sem mest var áberandi var matarmenningin og fjölskyldu-og ættarsagan. Þessu er miðlað milli kynslóða í gegnum mannleg samskipti þar sem fram fer bein og óbein kennsla. Matarmenningin er hluti af uppeldinu enda ólust allir viðmælendur upp við heimagerðan íslenskan mat á borð við rúllupylsu, hangikjöt, pönnukökur, kleinur og vínartertu. Viðmælendur höfðu einnig allir góða þekkingu á ættarsögu sinni enda voru þeim sagðar sögur af forfeðrum sínum og formæðrum í æsku. Íslenskt tungumál mundu flestir viðmælendur eftir að hafa heyrt í barnæsku og kunnu jafnvel eitthvað í málinu. Aftur á móti var mismunandi hvort, og þá hvernig, tungumálinu var miðlað til þeirra yngri. Yfirleitt töluðu þeir eldri íslensku þegar þeir vildu ekki að þau yngri skildu um hvað var rætt. \nVesturfararnir höfðu þá sérstöðu að vera menntaðir og læsir sem hefur haft áhrif á sjálfsmynd Vestur-Íslendinga í dag. Sú þekking sem þeir hafa á uppruna sínum og lífi forfeðra og formæðra hefur einnig haft mótunaráhrif á Vestur-Íslendinga og eru þeir stoltir af uppruna sínum og hverjir þeir eru.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.006 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".