Framlag áliðnaðar til landsframleiðslu
Bibliographic record
Abstract
Álframleiðsla hefur átt skjótan uppgang hér á landi og hefur í dag veruleg áhrif á íslenskt efnahags- og atvinnulíf. Framleiðsla áls hófst á Íslandi árið 1969 og nam hún þá tæpum 11 þúsund tonnum. Upp úr 1990 jókst framleiðslan til muna og er nú tæp 820 þúsund tonn. Til marks um mikilvægi áliðnaðarins má nefna að hann á þátt í myndun um 5.000 starfa hér á landi. Þá er ál mikilvæg útflutningsvara og er nánast allt ál sem framleitt er hér á landi flutt úr landi, en hlutdeild álafurða í vöruútflutningi er í kringum 40% sem er svipuð og hlutdeild sjávarafurða. Jafnframt er vöruskiptajöfnuður iðnaðarins ávallt jákvæður og skiptir tugum, ef ekki hundruðum milljarða króna. \n \nÍ þessari ritgerð er framlag áliðnaðar til vergrar landsframleiðslu metið á tímabilinu 2007-2010. Framlagi áliðnaðar má skipta í beint framlag, óbeint framlag og eftirspurnaráhrif. Beint framlag er metið með grunngögnum Hagstofunnar úr samræmdum skattaframtölum álfyrirtækjanna. Sýnt er fram á að orku-áliðnaður, þ.e. orkuiðnaður og áliðnaður í sameiningu, geti talist grunnatvinnuvegur. Á þeim grundvelli er óbeint framlag áliðnaðar metið með tveimur aðferðum; birgjaaðferð og atvinnuvegaaðferð. Auk þess er óbeinn virðisauki vegna raforkukaupa metinn sérstaklega. Í þessari ritgerð eru eftirspurnaráhrifin ekki metin. Heildarframlag áliðnaðar er þá summa beins og óbeins framlags. \n \nNiðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að beint framlag til vergrar landsframleiðslu hafi að meðaltali verið 2,9% á árunum 2007-2010. Hæst var það árið 2010 en þá var það 4,6%. Birgjaaðferð og atvinnuvegaaðferð gáfu gjörólíkar niðurstöður á óbeinu framlagi; atvinnuvegaaðferðin gefur að jafnaði tvöfalt hærri niðurstöður en birgjaaðferðin. Niðurstöður þessara aðferða afmarka þar með ákveðin mörk fyrir óbeinan virðisauka áliðnaðar. Heildar óbeinn virðisauki er þá að meðaltali á bilinu 2,6-3,4% á árunum 2007-2010, en hæstur var hann árið 2010. Þá er heildarframlag áliðnaðar til vergrar landsframleiðslu að jafnaði 5,5-6,3% á árunum 2007-2010. Á árinu 2010 er það talið vera um það bil 7,7-8,6%. \n \nNiðurstöður þessarar greiningar eru í ágætu samræmi við niðurstöður tölfræðilegrar rannsóknar á heildarframlagi sjávarútvegs á Íslandi, sem einnig telst vera grunnatvinnuvegur. Niðurstöðurnar eru auk þess í ágætu samræmi við sambærileg gögn fyrir áliðnaðinn í Québec-fylki í Kanada.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.000 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.015 | 0.005 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".