„Þeir kalla hann ósýnilega sjúkdóminn ...“ : upplifun fólks sem lifir með vefjagigt : rannsóknaráætlun
Bibliographic record
Abstract
Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðar rannsóknar er að skoða upplifun einstaklinga af því að vera með vefjagigt, reynslu þeirra af viðmóti heilbrigðisstarfsmanna sem og upplifun þeirra af viðhorfi samfélagsins. Notast verður við eigindlega aðferðafræði og stuðst verður við rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði, sem hentar vel til rannsókna á mannlegri reynslu. \nÁ heimsvísu er áætlað að 1,78% almennings séu með vefjagigt. Vefjagigt er langvarandi verkjaheilkenni en þrátt fyrir fjöldann allan af rannsóknum er orsök og eðli hennar ekki fullþekkt. Sú mýta að vefjagigt sé sálvefrænn sjúkdómur hefur verið lífsseig og framan af var vefjagigt þekkt sem „ruslakistugreining“ sem einstaklingar fengu þegar þeir höfðu óútskýrða verki frá stoðkerfi. Þrátt fyrir að til sé gagnreynt þverfaglegt efni um tilvist vefjagigtar, er enn fagfólk innan heilbrigðisstétta sem trúir því úrelta viðhorfi. Í dag er greiningin vefjagigt byggð á einkennum þar sem hún er ekki mælanleg með hefðbundnum klínískum rannsóknum og snýr meðferð að því að halda einkennum niðri þar sem varanleg lækning er ekki þekkt. Höfundar þessarar ritgerðar telja að mikilvægt sé að varpa ljósi á hver upplifun og reynsla einstaklinga sem lifa með vefjagigt sé þar sem ákveðið skilningsleysi hefur ráðið ríkjum sökum ósýnileika einkenna. \nOkkar von er sú að með fyrirhugaðri rannsókn megi auka og dýpka þekkingu og skilning á vefjagigt innan heilbrigðiskerfisins og rannsóknaráætlun þessi verði grundvöllur til frekari rannsókna á þessu sviði á Íslandi. Við trúum því að með aukinni fræðslu um vefjagigt öðlast almenningur betri þekkingu og með þeim hætti myndu einstaklingar sem glíma við heilkennið fá meiri skilning. \nLykilhugtök: Vefjagigt, langvinnir verkir, síþreyta, viðmót, reynsla.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.005 | 0.013 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".