„Það er svona rómantísk kyrrð yfir dauðanum“ : reynsla karlkyns þolenda af kynferðisofbeldi og sjálfsvígshugsunum
Why this work is in the frame
A frame that forgets how it found something cannot be audited. These are the routes that admitted this work.
Bibliographic record
Abstract
Sjálfsvígshugsanir eru algengar meðal karlkyns þolenda kynferðisofbeldis en afar fáar rannsóknir hafa einblínt sérstaklega á þann þátt. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða reynslu karlkyns þolenda af kynferðisofbeldi og sjálfsvígshugsunum. \nRannsóknaraðferðin er eigindleg, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði. Tekin voru djúpviðtöl við sjö karlmenn sem allir áttu það sameiginlegt að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku og jafnvel gert tilraun til sjálfsvígs. Tekin voru tvö viðtöl við fjóra af þátttakendunum en þrjú viðtöl við þrjá, samtals 17 viðtöl. \nHelstu niðurstöður sýna að sjálfsvígshugsanir snérust fyrst og fremst um að finna frið og sleppa við ágengar hugsanir um ofbeldið. Sjálfseyðingarhvöt var sterk hjá þeim öllum sem meðal annars kom fram í áhættuhegðun og sjálfsvígshugsunum. Mýtur um karlkyns þolendur kynferðisofbeldis hafði mikil áhrif á þátttakendurna en karlmennskuímyndin hafði neikvæð áhrif á þá sem fólst í ákveðinni tilfinningalegri þöggun sem varð til þess að þeir bældu niður tilfinningar sínar. Einnig voru þeir hræddir um að verða sjálfir stimplaðir sem gerendur sem hindraði þá í að segja frá. Brotin sjálfsmynd, niðurrif og neikvæðar hugsanir voru algengar en þeir greindu frá miklum létti við að segja frá. Stuðningur og viðbrögð annarra skiptu þá máli ásamt þekkingu heilbrigðisstarfsfólks sem þeim fannst þó ábótvant. Þátttakendurnir glímdu við ýmsa andlega erfiðleika á fullorðinsárum. Sjálfsvígshugsanir komu í bylgjum eftir því hvað gekk á í lífi þeirra. Karlmennskuímynd og brotin sjálfsmynd voru stórir áhrifaþættir, ásamt lífsseigum mýtum um karlkyns þolendur kynferðisofbeldis. \nMikilvægt er að útrýma þeim hugmyndum um að karlar eigi ekki að sýna tilfinningar né opna sig um þau áföll sem þeir verða fyrir. Einnig er þekking heilbrigðisstarfsfólks mikilvæg og mætti leggja meiri áherslu á að spyrja um áfallasögu. Lykilorð: kynferðisofbeldi, sjálfsvígshugsanir, sjálfseyðingarhvöt, mýtur, karlmennskuímynd
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.010 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from it