Magn miðlægrar verkjanæmingar hjá einstaklingum með slingáverkaröskun eftir bifreiðaslys
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Miðlæg næmni (e. central sensitization) orsakast af truflun í úrvinnslu verkja í miðtaugakerfinu og getur orðið til þess að einstaklingar finna fyrir verkjum við áreiti sem ekki ætti að kalla fram verki og/eða eru næmari fyrir verkjum almennt. Um það bil 50% einstaklinga sem verða fyrir slingáverka (e. whiplash) upplifa viðvarandi verki í kjölfarið. Slingáverkaröskun (SÁR) (e. whiplash associated disorder, WAD) er hugtak sem notað er yfir fjölda einkenna sem geta komið í kjölfar slingáverka. Nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að miðtaugakerfið verði næmara hjá einstaklingum með langvinna SÁR en tengsl á milli miðlægrar næmni og langvinnrar SÁR er ekki vel þekkt. Tilgangur þessarar rannsóknar var að meta breytingar á miðlægri næmni fyrsta árið eftir bifreiðaslys og mögulega áhrifaþætti. Aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn samanburðarrannsókn. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu orðið fyrir slingáverka eftir bifreiðaslys á árunum 2022–2023, metnir með I. eða II. gráðu slingáverka samkvæmt skilgreiningu Quebec Task Force (n=120). Þátttakendurnir svöruðu sjálfsmats spurningalistanum Central Sensitization Inventory (CSI) í kjölfar áverkans, bæði í meðalbráðum (1-3 mánuðir) og langvinnum (>12 mánuðir) fasa. Þeir sem skoruðu ≥ 40 stig á CSI voru taldir vera með miðlæga næmni. Þeir sem voru með mið- til hááhættueinkenni samkvæmt WhipPredict voru taldir vera með SÁR. Auk þess voru áhrif aldurs, kyns, skor á Neck Disability Index (NDI) spurningalistanum, staðsetning í bifreið og birtingarmynd verkja (e. pain presentation) í kjölfar áverkans metin. Niðurstöður: Fjöldi einstaklinga með miðlæga næmni breyttist ekki marktækt frá upphafsmælingu (1–3 mánuðum eftir áverka) til lokamælingar (12 mánuðum síðar) (p=0,433). Það sama á við um fjölda einstaklinga með SÁR (p=0,705). Fleiri einstaklingar voru með alvarlega eða mjög alvarlega miðlæga næmni í lokamælingunni miðað við upphafsmælinguna (p=0,028). Heilt yfir voru konur með aukna miðlæga næmni miðað við karla (óháð tíma mælingar; p=0,011) en aldur hafði ekki marktæk áhrif (p=0,105). Fylgni var á milli einkenna frá hálsi og miðlægrar næmni, bæði í upphafs- (Pearson’s r=0,706, p<,001) og lokamælingunni (Pearson’s r=0,788, p<,001). Þeir þátttakendur sem voru farþegar, fengu höfuðhögg, upplifðu höfuðverki eða svima í kjölfar áverkans, eða með fleiri snemmbúin einkenni, eins og verki og hreyfiskerðingar, skoruðu hærra á CSI ári eftir bifreiðaslyss samanborið við þátttakendur sem ekki voru með ofantalin einkenni (p<0,05). Ályktanir: Einstaklingar sem verða fyrir slingáverka eru líklegir til að finna enn fyrir einkennum ári seinna. Sömuleiðis eru einstaklingar líklegir til að finna fyrir aukinni miðlægri næmni þegar líður frá áverkanum, og eru konur líklegri til að vera með aukna miðlæga næmni miðað við karla. Þeir sem eru farþegar í bifreið, eða fá snembúna verki, eða einkenni eins og höfuðverk eða svima, eru með verri langtímahorfur en þeir sem voru ökumenn, fengu verki seinna eða ekki ofantalin einkenni. Það undirstrikar mikilvægi þess að skima markvisst fyrir þessum þáttum. Með því að bera kennsl á þá er hægt að grípa fyrr inn með viðeigandi meðferðarúrræðum og hugsanlega draga úr líkum á þróun langvinnra verkja og skerðingar.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.002 | 0.001 |
| Research integrity | 0.001 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.674 | 0.011 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".