Reynsla sjúklinga af heilsufarstengdu sjálfsmati og endurhæfingu í verkjaskólanum í Kristnesi.
Bibliographic record
Abstract
Rannsóknin: Í verkjaskólanum í Kristnesi sem er starfræktur innan endurhæfingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri hafa sjúklingar skráð og metið eigið heilsufar á sérstök eyðublöð. Blöðin og vinnulagið sem þeim tengist byggja m.a. á hugmyndafræði um einstaklingsmiðaða nálgun, gagnvirk samskipti, sameiginlegri ákvarðanatöku og á því að byggja hjúkrun á þeirri merkingu sem sjúklingar leggja í aðstæður sínar. \nTilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar sem er fyrirbærafræðileg var annars vegar að kanna reynslu sjúklinga af því að fylla út sjálfsmatseyðublöðin og meta þannig heilsufarstengda þætti og hins vegar að kanna reynslu sjúklinga af þeirri meðferð sem verkjaskólinn hefur að bjóða. \nRannsóknarspurningar: Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar: \n1.\tHver er reynsla sjúklinga í endurhæfingu af heilsufarstengdu sjálfsmati? \n2.\tHver er reynsla sjúklinga af endurhæfingu verkjaskólans í Kristnesi? \nAðferð: Við gerð rannsóknarinnar var notast við rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Tekin voru opin viðtöl við fjóra sjúklinga sem síðan voru greind í þemu og sett upp í greiningarlíkön. \nNiðurstöður: Aðalþemað í geiningarlíkani I sem fjallar um reynslu sjúklinga af sjálfsmatinu var: Jákvæð upplifun af sjálfsmati en þörf á umræðu. Meginþemun voru: Áhrif á samskipti og óljós tilgangur með sjálfsmatinu. Í greiningarlíkani II sem lýsir reynslu sjúklinga af endurhæfingunni í verkjaskólanum var aðalþemað: Stuðningur og umhyggja. Meginþemun voru: Sameiginleg ákvarðanataka, einstaklingsmiðuð nálgun, ánægja með samskipti og aðgengi að starfsfólki, hvatning, hvíld og of miklar væntingar. \nÁlyktanir: Reynsla sjúklinga af sjálfsmatinu og endurhæfingunni í verkjaskólanum er jákvæð en það mætti gefa þeim betra tækifæri á umræðum um sjálfsmatið. Einnig þyrfti að útskýra markmið sjálfsmatsins betur fyrir sjúklingum svo þeir upplifi virka þátttöku og sameiginlega ákvarðanatöku í endurhæfingarferlinu. Sjálfsmatið hefur samt sem áður góð áhrif á samskipti milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. \nLykilhugtök: Sjálfsmat, endurhæfing, langvinnir verkir, einstaklingsmiðuð nálgun, sameiginleg ákvarðanataka.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.000 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.001 | 0.002 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".