Hugarró : reynsla þolenda kynferðisbrota af því að leggja fram kæru hjá lögreglu og þiggja sálfræðiviðtal að lokinni skýrslutöku
Bibliographic record
Abstract
Frá árinu 2018 hefur verið í boði fyrir þolendur kynferðisobeldis að fara í sálfræðiviðtal að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu hér á landi en lítið er til af rannsóknum um það hvort sálfræðiviðtal í kjölfar skýrslutöku hafi mikilvægu hlutverki að gegna fyrir andlega heilsu þeirra og líðan. Meginmarkmið rannsóknarinnar var því að kanna reynslu fórnarlamba kynferðislegs ofbeldis af skýrslutöku hjá lögreglu og sálfræðiviðtali eftir skýrslutöku. Rannsóknin er eigindleg og var fyrirbærafræði Vancouver-skólans notuð. Tekin voru samtals fjögur viðtöl við tvo þolendur kynferðislegs ofbeldis. Báðir þátttakendur fóru í skýrslutöku hjá Lögreglu Norðurlands eystra og fengu sálfræðiviðtal að því loknu. Rannsóknin er partur af umbótaverkefni á vegum Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Rannsóknamiðstöðvar gegn ofbeldi við Háskólann á Akureyri. Í þessari ritgerð verður rætt almennt um kynferðisofbeldi, ásamt því að fjalla um afleiðingar og viðbrögð við kynferðisofbeldi, áfallastreituröskun, kærumál kynferðisbrota, skýrslutöku hjá lögreglu og fyrri rannsóknir. Í niðurstöðum kemur fram hversu mismunandi reynsla þátttakenda var á bæði skýrslutöku og sálfræðiviðtali en einnig verður rætt um sameiginlega og mismunandi þætti sem komu upp í viðtölunum við þátttakendur. Til dæmis verður talað um mikilvægi sálfræðihjálpar í kjölfar kynferðislegs ofbeldis, viðtalsaðferðir lögreglu og sálfræðinga, framkomu lögreglu við brotaþola, framkomu sálfræðinga við brotaþola, lengd kæruferlis og hvaða andlegu áhrif þetta hafði á þátttakendur. Annar þátttakandinn var með betri reynslu á réttarkerfinu en hinn og er sérstaklega fjallað um það. Einnig verður rætt mikilvægi þess að nota rétta viðtalsaðferð bæði í skýrslutöku og í viðtali hjá sálfræðingi. Fjallað var um samtökin Stígamót og hvaða áhrif það hafði á annan þátttakandann að leita þangað. Ályktað er svo að þörf sé á að skoða betur viðtalstækni lögreglumanna í skýrslutöku þegar brotaþolar kynferðisofbeldis eiga í hlut og mögulega sálfræðinga sem starfa innan réttarkerfi landsins og koma til með að taka á móti þeim brotaþolum í kjölfar skýrslutöku. \nLykilorð: Kynferðislegt ofbeldi, skýrslutaka, sálfræðiviðtal, brotaþolar.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.003 | 0.001 |
| Research integrity | 0.001 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.292 | 0.013 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".