„Sinnuleysið olli vanlíðan en stuðningurinn vellíðan:“ Reynsla ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við ofbeldisatvikum og áhrif á úrvinnslu
Notice bibliographique
Résumé
Tilgangur Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu ráðgjafa á geðsviði Landspítala af viðbrögðum stjórnenda við starfstengdu ofbeldi og hvort viðbrögðin höfðu áhrif á úrvinnslu þolenda á því að hafa orðið fyrir ofbeldi í starfi. Aðferð Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru ráðgjafar á geðsviði Landspítala sem höfðu orðið fyrir starfstengdu ofbeldi fyrir yfir sex mánuðum síðan. Gagnaöflun fór fram með einu 42-69 mínútna löngu viðtali við hvern þátttakanda. Þátttakendur voru 12 talsins, sex konur og sex karlar. Niðurstöður Yfirþema rannsóknarinnar var „Sinnuleysi stjórnandans jók á vanlíðan mína en mér leið betur þegar ég fann fyrir stuðningi“. Ráðgjafar sem fundu fyrir stuðningi stjórnenda í kjölfar ofbeldisatvika voru yfirleitt ánægðari í starfi og töldu stuðninginn auðvelda þeim úrvinnslu ofbeldisins. Ráðgjafar sem upplifðu sinnuleysi stjórnenda höfðu margir gefist upp á að vinna úr ofbeldinu eða upplifðu neikvæðar tilfinningar gagnvart sinnuleysinu. Meginþemun voru tvö: sinnuleysi stjórnenda og stuðningur stjórnenda sem vísar til mismunandi viðbragða stjórnenda við starfstengdum ofbeldisatvikum. Undirþemu fyrir sinnuleysi stjórnenda voru: úrræðaleysi: „Maður veit ekkert hvað er í boði“, gjaldfelling: „Eins og við séum ruslið í tunnunni hjá þeim“ og viðbragðsleysi: „Þetta er bara svona“. Undirþemu fyrir þemað stuðningur stjórnenda voru: samkennd: „Ég finn að fólki er ekki sama um mig“, úrræði: „Að fá stuðninginn var til mikilla bóta“ og viðurkenning: „Þá leið mér betur“. Ályktanir Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að sinnuleysi stjórnenda gagnvart starfstengdu ofbeldi auki á vanlíðan þátttakenda en stuðningur stjórnenda í slíkum aðstæðum sé líklegur til að bæta líðan þeirra. Álykta má að aukinn stuðningur stjórnenda við ráðgjafa sem verða fyrir starfstengdu ofbeldi sé líklegur til að draga úr neikvæðum afleiðingum slíkrar reynslu. Lykilorð Ofbeldi á íslenskum geðdeildum, ráðgjafar, viðbrögð stjórnenda, áhrif á úrvinnslu, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,011 | 0,006 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,009 |
| Études des sciences et des technologies | 0,006 | 0,005 |
| Communication savante | 0,003 | 0,002 |
| Science ouverte | 0,007 | 0,003 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,004 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,006 | 0,002 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».