"Þetta er afleiðing af einhverju öðru" : reynsla karlmanna sem hafa verið í fíkniefnaneyslu af áföllum í æsku
Notice bibliographique
Résumé
Bakgrunnur rannsóknar: Ofneysla fíkniefna er alvarlegt lýðheilsuvandamál sem getur haft óafturkræfar afleiðingar. Áföll í æsku geta ýtt undir fíknihegðun seinna á ævinni og eru efni notuð sem bjargráð frá vanlíðan. Karlmenn eru síður líklegri til að segja frá áföllum og leita sér hjálpar vegna þeirra en konur. \nTilgangur rannsóknar var að skoða reynslu karlmanna sem hafa verið í fíkniefnaneyslu af áföllum í æsku með það að markmiði að auka þekkingu og dýpka skilning á fyrirbærinu. \nRannsóknaraðferðin var Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru sjö karlmenn sem höfðu allir misnotað fíkniefni á einhverjum tímapunkti og orðið fyrir áföllum í æsku. Tekin voru tvö viðtöl við hvern þátttakanda, samtals 14 viðtöl. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýna að þátttakendur upplifðu fíkniefnaneyslu sína sem afleiðingu af áföllunum sem þeir urðu fyrir í æsku. Allir upplifðu vanlíðan sökum áfallanna og notuðu fíkniefnin sem bjargráð. Hjá sumum var félagsskapur partur af neyslunni en öðrum ekki. Þátttakendur voru að mestu ósáttir við hvernig meðferðarúrræðum er háttað hér á landi, biðlistar langir og of mikið um trúmál. Niðurstöðum var skipt í fimm meginþemu: 1) “Ég slökkti á mér tilfinningalega“ 2) „Við erum að reyna að deyfa sársaukann með þessum efnum“ 3) „Stórir strákar fara ekki að grenja“ 4) „Það verður kannski ekkert sama hugsunin á morgun“ 5) „Maður er bara ekkert orðinn heill“. \nÁlyktun: Vöntun er á skilningi meðal fagfólks og í samfélaginu um að stundum sé um að ræða undirliggjandi orsök þegar kemur að fíkniefnaneyslu karlmanna, eins og áföll. Svo virðist sem vöntun sé á úrræðum fyrir karlmenn sem lent hafa í áföllum í æsku svo hægt sé að vinna úr afleiðingum þeirra. Einnig er vöntun á markvissri stefnu til að aðstoða þá sem nota fíkniefni við að slá á andlega vanlíðan. \nLykilorð: Fíkniefnaneysla, áföll í æsku, fyrirbærafræði, bjargráð, meðferðarúrræði.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction machine sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Le volet Gemma est une étiquette directe du modèle pour chaque travail de la base, lue sur la notice réduite au titre. Le volet Codex est un classifieur appris des 10 348 étiquettes directes de Codex et calibré sur les taux pondérés de l'échantillon; les champs sans appui suffisant ne portent aucun appel Codex. Le mode candidate est l'union des deux volets; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont pas des étiquettes humaines.
Scores du classifieur distillé par catégorie (deux têtes)
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,005 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,000 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,009 | 0,006 |
| Communication savante | 0,011 | 0,007 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,006 |
| Intégrité de la recherche | 0,005 | 0,006 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,092 | 0,037 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; un appel candidat d’une seule source (Gemma direct ou Codex distillé), pas un consensus.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».