MétaCan
Menu
Retour à la cohorte
Enregistrement W6991439198

Hagnýting mælitækis (ICE-EFFQ) í fjölskylduhjúkrun til að greina fjölskylduvirkni. Fræðileg samantekt.

2024· dissertation· is· W6991439198 sur OpenAlexaboutno aff

Notice bibliographique

RevueSkemman · 2024
Typedissertation
Langueis
DomaineMedicine
ThématiqueGastrointestinal motility and disorders
Établissements canadiensnon disponible
Organismes subventionnairesnon disponible
Mots-clésNucleofectionLimitingWork (physics)Fusible alloy
DOInon disponible

Résumé

récupéré en direct d'OpenAlex

Bakgrunnur: Fjölskyldur sækja sér þjónustu á flestum stöðum innan heilbrigðiskerfisins. Fáar rannsóknir fjalla um mat á fjölskylduvirkni og mikilvægi þess innan fjölskylduhjúkrunar. Sýnt hefur verið fram á gagnsemi og áhrif fjölskylduhjúkrunar á veikindi skjólstæðings en þó eru vísbendingar um að fjölskyldur fái ekki nógu góða þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Fá mælitæki eru til sem hafa þann tilgang að meta fjölskylduvirkni í kjölfar bráðra eða langvinna veikinda innan fjölskyldna. ICE-EFFQ mælitækið var þróað á Íslandi árið 2012, það er byggt á Calgary fjölskyldumatslíkaninu og metur fjölskylduvirkni. Mælitækið hefur verið notað og prófað á Íslandi og í öðrum löndum. 
\nTilgangur: Að skoða með hvaða hætti matstækið ICE-EFFQ er notað í rannsóknum og hver ávinningurinn er af því að fjölskylduvirkni sé metinn. Einnig að samþætta þekkingu um hvað vitað er um samband milli fjölskylduvirkni og reynslunnar af því að lifa með bráðan eða langvinnan sjúkdóm/heilsufarsvanda. Að lokum var rýnt í hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir hafa verið þróaðar og prófaðar í rannsóknum til að bæta fjölskylduvirkni, lífsgæði eða líðan hjá fjölskyldum einstaklinga sem glíma við bráðan eða langvinnan sjúkdóm/heilsufarsvanda. 
\nAðferð: Fræðileg samantekt þar sem kerfisbundin heimildaleit fór fram í þremur gagnagrunnum, PubMed, CINAHL og Google Scholar. Notast var við stöðluð leitarorð og rannsóknir skimaðar með tilliti til inntöku og útilokunarskilyrða. Gagnaöflun var sett upp í PRISMA flæðirit. Leitað var eftir heimildum á íslensku og ensku og útgáfuár takmarkað við 2012-2024. Heimildaleit fór fram á tímabilinu janúar til mars 2024. Þátttakendur rannsóknanna voru einstaklingar á öllum aldri sem kljást við bráða eða langvinna sjúkdóma eða heilsufarsvanda og fjölskyldur þeirra. Stuðst var við PICOTS viðmið við gerð rannsóknarspurninga. 
\nNiðurstöður: Niðurstöður þessarar fræðilegu samantektar byggja á 17 rannsóknum sem stóðust inntökuskilyrði. Rannsóknargreinarnar komu frá mismunandi löndum og eiga það sameiginlegt að skoða fjölskylduna sem heild og kanna ávinning þess að notast við aðferðir fjölskylduhjúkrunar til að bæta lífsgæði fjölskyldunnar þegar einn meðlimur hennar greinist með langvinnan eða bráðan sjúkdóm eða heilsufarsvandamál. Höfundar greindu þrjú þemu; hvernig ICE-EFFQ matstækið hefur verið notað í rannsóknum, hvert samband fjölskylduvirkni og reynslunnar að því að lifa með langvinnan eða bráðan sjúkdóm eða heilsufarsvanda er og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir eru oftast notaðar í rannsóknum. ICE-EFFQ matstækið hefur verið prófað í nokkrum löndum og er notað til að meta fjölskylduvirkni ásamt öðrum matstækjum sem meta aðra hluti. Tengsl innan fjölskyldu hafa áhrif á hversu vel fjölskyldan er í stakk búin til að takast á við sjúkdóm eða heilsufarsvanda. 
\nHelstu fjölskylduhjúkrunarmeðferðir sem eru notaðar í rannsóknum til að hafa áhrif á fjölskylduvirkni eru stuttar meðferðarsamræður, FAM-SOTC og FAM-TCI. 
\nÁlyktun: Það er svigrúm til þess að efla og bæta stuðning við fjölskyldur einstaklinga sem glíma við bráðan eða langvinnan sjúkdóm eða heilsufarsvanda. Niðurstöður samantektarinnar leiða í ljós mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar gefi sér tíma til að hlúa að fjölskyldum með því að viðhalda eða bæta fjölskylduvirkni þegar fjölskylda glímir við sjúkdóm eða heilsufarsvanda. ICE-EFFQ matstækið getur gagnast vel til að meta fjölskylduvirkni fyrir og eftir íhlutanir eins og meðferðarsamræður. 
\nLykilorð: fjölskylduhjúkrun, fjölskylduhjúkrunarmeðferðir, fjölskylduvirkni, meðferðar- samræður, mælitæki

Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.

Comment cette classification a été obtenuedéplier

Prédiction distillée sur la base complète

Imitation des enseignants

Ni prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.

score de la tête « metaresearch » (Codex)0,001
score de la tête « metaresearch » (Gemma)0,002
Version: codex-gemma-dda1882f352aStatut de validation: machine_predicted_unvalidated
Catégories candidatesMéta-épidémiologie (sens strict), Intégrité de la recherche, Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger)
Catégories consensuellesMéta-épidémiologie (sens strict), Intégrité de la recherche, Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger)
DomaineSignal candidat: aucune · Signal consensuel: aucune
Devis d'étudeSignal candidat: Observationnel · Signal consensuel: aucune
GenreSignal candidat: Empirique · Signal consensuel: Empirique
Score de désaccord entre enseignants0,360
Score d'incertitude au seuil1,000

Scores Codex et Gemma par catégorie

CatégorieCodexGemma
Métarecherche0,0010,002
Méta-épidémiologie (sens strict)0,0020,002
Méta-épidémiologie (sens large)0,0030,001
Bibliométrie0,0010,002
Études des sciences et des technologies0,0010,001
Communication savante0,0010,001
Science ouverte0,0010,000
Intégrité de la recherche0,0020,004
Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger)0,0050,015

Scores machine (provisoires)

Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.

Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.

Tête enseignante Opus0,019
Tête enseignante GPT0,290
Écart entre enseignants0,272 · la distance entre les deux têtes enseignantes sur ce seul travail
Statut de validationscore_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découle

Classification

machine, non validée

Prédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.

Devis d'étudeObservationnel
Domainenon disponible
GenreEmpirique

Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».

En bref

Citations0
Publié2024
Routes d'admission1
Résumé présentoui

Explorer davantage

Même revueSkemmanMême sujetGastrointestinal motility and disordersTravaux en français237 207