Hagnýting mælitækis (ICE-EFFQ) í fjölskylduhjúkrun til að greina fjölskylduvirkni. Fræðileg samantekt.
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Fjölskyldur sækja sér þjónustu á flestum stöðum innan heilbrigðiskerfisins. Fáar rannsóknir fjalla um mat á fjölskylduvirkni og mikilvægi þess innan fjölskylduhjúkrunar. Sýnt hefur verið fram á gagnsemi og áhrif fjölskylduhjúkrunar á veikindi skjólstæðings en þó eru vísbendingar um að fjölskyldur fái ekki nógu góða þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Fá mælitæki eru til sem hafa þann tilgang að meta fjölskylduvirkni í kjölfar bráðra eða langvinna veikinda innan fjölskyldna. ICE-EFFQ mælitækið var þróað á Íslandi árið 2012, það er byggt á Calgary fjölskyldumatslíkaninu og metur fjölskylduvirkni. Mælitækið hefur verið notað og prófað á Íslandi og í öðrum löndum. \nTilgangur: Að skoða með hvaða hætti matstækið ICE-EFFQ er notað í rannsóknum og hver ávinningurinn er af því að fjölskylduvirkni sé metinn. Einnig að samþætta þekkingu um hvað vitað er um samband milli fjölskylduvirkni og reynslunnar af því að lifa með bráðan eða langvinnan sjúkdóm/heilsufarsvanda. Að lokum var rýnt í hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir hafa verið þróaðar og prófaðar í rannsóknum til að bæta fjölskylduvirkni, lífsgæði eða líðan hjá fjölskyldum einstaklinga sem glíma við bráðan eða langvinnan sjúkdóm/heilsufarsvanda. \nAðferð: Fræðileg samantekt þar sem kerfisbundin heimildaleit fór fram í þremur gagnagrunnum, PubMed, CINAHL og Google Scholar. Notast var við stöðluð leitarorð og rannsóknir skimaðar með tilliti til inntöku og útilokunarskilyrða. Gagnaöflun var sett upp í PRISMA flæðirit. Leitað var eftir heimildum á íslensku og ensku og útgáfuár takmarkað við 2012-2024. Heimildaleit fór fram á tímabilinu janúar til mars 2024. Þátttakendur rannsóknanna voru einstaklingar á öllum aldri sem kljást við bráða eða langvinna sjúkdóma eða heilsufarsvanda og fjölskyldur þeirra. Stuðst var við PICOTS viðmið við gerð rannsóknarspurninga. \nNiðurstöður: Niðurstöður þessarar fræðilegu samantektar byggja á 17 rannsóknum sem stóðust inntökuskilyrði. Rannsóknargreinarnar komu frá mismunandi löndum og eiga það sameiginlegt að skoða fjölskylduna sem heild og kanna ávinning þess að notast við aðferðir fjölskylduhjúkrunar til að bæta lífsgæði fjölskyldunnar þegar einn meðlimur hennar greinist með langvinnan eða bráðan sjúkdóm eða heilsufarsvandamál. Höfundar greindu þrjú þemu; hvernig ICE-EFFQ matstækið hefur verið notað í rannsóknum, hvert samband fjölskylduvirkni og reynslunnar að því að lifa með langvinnan eða bráðan sjúkdóm eða heilsufarsvanda er og hvaða fjölskylduhjúkrunarmeðferðir eru oftast notaðar í rannsóknum. ICE-EFFQ matstækið hefur verið prófað í nokkrum löndum og er notað til að meta fjölskylduvirkni ásamt öðrum matstækjum sem meta aðra hluti. Tengsl innan fjölskyldu hafa áhrif á hversu vel fjölskyldan er í stakk búin til að takast á við sjúkdóm eða heilsufarsvanda. \nHelstu fjölskylduhjúkrunarmeðferðir sem eru notaðar í rannsóknum til að hafa áhrif á fjölskylduvirkni eru stuttar meðferðarsamræður, FAM-SOTC og FAM-TCI. \nÁlyktun: Það er svigrúm til þess að efla og bæta stuðning við fjölskyldur einstaklinga sem glíma við bráðan eða langvinnan sjúkdóm eða heilsufarsvanda. Niðurstöður samantektarinnar leiða í ljós mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar gefi sér tíma til að hlúa að fjölskyldum með því að viðhalda eða bæta fjölskylduvirkni þegar fjölskylda glímir við sjúkdóm eða heilsufarsvanda. ICE-EFFQ matstækið getur gagnast vel til að meta fjölskylduvirkni fyrir og eftir íhlutanir eins og meðferðarsamræður. \nLykilorð: fjölskylduhjúkrun, fjölskylduhjúkrunarmeðferðir, fjölskylduvirkni, meðferðar- samræður, mælitæki
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.004 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.005 | 0.015 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".