Mér fannst ég verða aftur ég sjálf : reynsla kvenna af notkun hormónauppbótarmeðferðar á breytingaskeiði
Notice bibliographique
Résumé
Bakgrunnur: Breytingaskeið er tímabilið frá fyrstu einkennum að tíðahvörfum sem getur hafist allt að 10 árum áður en tíðahvörf skella á. Á þessu skeiði getur konan upplifað ýmis líkamleg og andleg einkenni. Í dag er hormónauppbótarmeðferð tengt breytingaskeiði árangursríkur meðferðarmöguleiki til meðhöndlunar á líkamlegri og andlegri vanlíðan þegar kona gengur í gegnum breytingaskeið. Tilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að afla aukinnar þekkingar á reynslu kvenna af hormónauppbótarmeðferð á breytingaskeiði. Aðferð: Eigindleg fyrirbærafræðileg aðferð var valin og stuðst við Vancouver skólann í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru 12 íslenskar konur á aldrinum 47-53 ára sem höfðu verið á hormónauppbótarmeðferð síðustu 3-24 mánuði og voru valdar með tilgangsúrtaki. Tekin voru 12 einstaklingsviðtöl, rituð upp orð fyrir orð og að lokum þemagreind. Niðurstöður: Yfirþema rannsóknarinnar var; Mér fannst ég verða aftur ég sjálf. Jafnframt voru sex meginþemu greind; Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti hann, Það kviknaði aftur á mér, Félagsleg tengsl byggð upp, Eftirsjá að tímanum sem ég missti, Virk hlustun og samskipti og Þetta þroskar mann. Konurnar greindu frá jákvæðum líkamlegum og andlegum breytingum eftir að þær byrjuðu á hormónauppbótarmeðferð. Til dæmis hurfu liðaverkir og þær hvíldust betur á nóttunni sem var ein af ástæðum þess að þær byrjuðu á hormónum. Í rannsókninni kom fram að konurnar hefðu viljað fá greiningu fyrr þar sem þær áttu nokkrar læknisheimsóknir að baki og upplifðu eftirsjá að tímanum þegar þær voru að kljást við einkenni breytingaskeiðs. Einnig hefðu þær viljað fá meiri skilning frá fagfólki þegar þær leituðu eftir aðstoð. Ályktun: Álykta má að hormónauppbótarmeðferð bæti verulega líkamlega-, andlega- og félagslega líðan kvenna á breytingaskeiði. Mikilvægt er að heilsugæslan komi til móts við konur sem eru að ganga í gegnum breytingaskeiðið og bæti stuðning og fræðslu til þeirra um breytingaskeiðið þannig að þær geti tekið upplýsta ákvörðun um ávinning og áhættuþætti hormónauppbótarmeðferðar.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction machine sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Le volet Gemma est une étiquette directe du modèle pour chaque travail de la base, lue sur la notice réduite au titre. Le volet Codex est un classifieur appris des 10 348 étiquettes directes de Codex et calibré sur les taux pondérés de l'échantillon; les champs sans appui suffisant ne portent aucun appel Codex. Le mode candidate est l'union des deux volets; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont pas des étiquettes humaines.
Scores du classifieur distillé par catégorie (deux têtes)
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,001 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,003 | 0,003 |
| Communication savante | 0,007 | 0,004 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,005 |
| Intégrité de la recherche | 0,003 | 0,003 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,174 | 0,078 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; un appel candidat d’une seule source (Gemma direct ou Codex distillé), pas un consensus.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».