Mér fannst ég verða aftur ég sjálf : reynsla kvenna af notkun hormónauppbótarmeðferðar á breytingaskeiði
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Breytingaskeið er tímabilið frá fyrstu einkennum að tíðahvörfum sem getur hafist allt að 10 árum áður en tíðahvörf skella á. Á þessu skeiði getur konan upplifað ýmis líkamleg og andleg einkenni. Í dag er hormónauppbótarmeðferð tengt breytingaskeiði árangursríkur \nmeðferðarmöguleiki til meðhöndlunar á líkamlegri og andlegri vanlíðan þegar kona gengur í gegnum breytingaskeið. \nTilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að afla aukinnar þekkingar á reynslu kvenna af hormónauppbótarmeðferð á breytingaskeiði. \nAðferð: Eigindleg fyrirbærafræðileg aðferð var valin og stuðst við Vancouver skólann í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru 12 íslenskar konur á aldrinum 47-53 ára sem höfðu verið á hormónauppbótarmeðferð síðustu 3-24 mánuði og voru valdar með tilgangsúrtaki. Tekin voru 12 einstaklingsviðtöl, rituð upp orð fyrir orð og að lokum þemagreind. \nNiðurstöður: Yfirþema rannsóknarinnar var; Mér fannst ég verða aftur ég sjálf. Jafnframt voru sex meginþemu greind; Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti hann, Það kviknaði aftur á mér, Félagsleg tengsl byggð upp, Eftirsjá að tímanum sem ég missti, Virk hlustun og samskipti og Þetta þroskar mann. Konurnar greindu frá jákvæðum líkamlegum og andlegum breytingum eftir að þær byrjuðu á hormónauppbótarmeðferð. Til dæmis hurfu liðaverkir og þær hvíldust betur á nóttunni sem var ein af ástæðum þess að þær byrjuðu á hormónum. Í rannsókninni kom fram að konurnar hefðu viljað fá greiningu fyrr þar sem þær áttu nokkrar læknisheimsóknir að baki og upplifðu eftirsjá að tímanum þegar þær voru að kljást við einkenni breytingaskeiðs. Einnig hefðu þær viljað fá meiri skilning frá fagfólki þegar þær leituðu eftir aðstoð. \nÁlyktun: Álykta má að hormónauppbótarmeðferð bæti verulega líkamlega-, \nandlega- og félagslega líðan kvenna á breytingaskeiði. Mikilvægt er að \nheilsugæslan komi til móts við konur sem eru að ganga í gegnum \nbreytingaskeiðið og bæti stuðning og fræðslu til þeirra um breytingaskeiðið þannig að þær geti tekið upplýsta ákvörðun um ávinning og áhættuþætti hormónauppbótarmeðferðar.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.001 |
| Research integrity | 0.002 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.002 | 0.012 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".