Fálkarnir : sigur Vestur-Íslendinga á Ólympíuleikunum árið 1920
Notice bibliographique
Résumé
Árið 1920 vann íshokkílið Fálkanna gull á Ólympíuleikunum fyrir hönd Kanada en lið Fálkanna samanstóð af annarri kynslóð Vestur-Íslendinga fyrir utan einn kanadískan varamann. Ýmislegt mælti á móti því að liðið ætti möguleika á að ná þessum árangri en nefna má að liðið var skipað vinum sem komu úr litlu samfélagi, þeim var meinað að taka þátt í aðalíshokkídeild Winnipeg, þeir voru fátækir og höfðu lítinn frítíma og allir sem höfðu aldur til gegndu herþjónustu stuttu fyrir Ólympíuleikana. \nRannsóknarspurningin er: Hvaða þættir höfðu áhrif á það að lið Fálkanna varð Ólympíumeistari í íshokkí árið 1920? Undirspurningarnar eru: Hverjir voru eiginleikar liðsins og hlutverk þjálfarans í mótun liðsins? Hvert var hlutverk Íslendingasamfélagsins og samfélagsins í Kanada? \nRannsóknin er heimildarannsókn þar sem aðallega var notast við kanadísk dagblöð frá þessum tíma, íslensk dagblöð í Kanada, samtímafrásagnir, bækur og greinar. Helstu niðurstöður eru þær að aðalsigur Fálkanna var í raun að verða fulltrúi Kanadamanna á Ólympíuleikunum en Norður Ameríkuliðin höfðu mikla yfirburði yfir evrópsku liðin og íshokkí var á þessum tíma þjóðaríþrótt Kanadamanna. Leikmannahópurinn var afar sterkur en að auki bjó liðið yfir mikilli samheldni, bæði félagslega og sem lið, og þjálfarinn gat nýtt hæfileika hvers og eins á vellinum með ótrúlegum hætti. Liðið lenti í miklu mótlæti sem þjappaði því saman en átti engu að síður stuðning heimamanna og hollusta leikmanna og ráðamanna við liðið var einstök. Mikilvægt var fyrir leikmennina að sanna sig sem kanadískir ríkisborgarar og um leið að sanna sig fyrir foreldrum sínum sem fórnuðu miklu fyrir fjölskyldur sínar. Margt má læra af Fálkunum, meðal annars að fámenn samfélög geta náð árangri í afreksíþróttum. Hvaða eiginleika leikmennirnir hafa tileinkað sér og hvernig þeir spila saman skiptir mestu máli enda eru einungis sex leikmenn inni á vellinum í einu.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,001 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,004 | 0,001 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,001 | 0,001 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,012 | 0,009 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».