Að fara úr virkum lífsstíl í félagslega einangrun og aftur til baka : áhrif heilahristings af völdum höfuðáverka í íþróttum á sálfélagslega líðan íþróttafólks
Notice bibliographique
Résumé
Heilahristingur af völdum höfuðáverka er tiltölulega algengur hjá íþróttafólki og hafa áhrifin komið betur og betur í ljós síðustu ár. Síðustu 20 ár hefur ákveðin vitundarvakning orðið innan íþróttaheimsins hvað varðar heilahristing en aðallega hafa líkamleg áhrif þess á íþróttafólk verið skoðuð en minna um áhrif á sálræna líðan en það hefur verið að breytast upp á síðkastið. Tilgangurinn með þessari rannsókn er að öðlast dýpri þekkingu og skilning á sálfélagslegum áhrifum heilahristings af völdum höfuðáverka á íþróttafólk sem getur leitt til aukinnar þekkingar fólks á fyrirbærinu, þá sérstaklega starfsfólks sem vinnur í kringum íþróttalið og íþróttafólk. \nRannsóknarspurningin er: Hver er reynsla íþróttakvenna af áhrifum heilahristings af völdum höfuðáverka á sálfélagslega líðan, endurhæfingu og viðbrögðum og almennri þekkingu fólks. Stuðst var við eigindlega aðferðafræði, Vancouver skólans í fyrirbærafræði. Tekin voru djúpviðtöl við þrjár íþróttakonur sem höfðu fengið heilahristing af völdum höfuðáverka í sinni íþrótt og gengið í gegnum endurhæfingu í kjölfarið. Niðurstöður leiddu í ljós að þátttakendur fundu fyrir sálfélagslegum einkennum í kjölfar einangrunar og annarra takmarkana vegna líkamlegra einkenna heilahristings. Skyndilegar breytingar urðu á lífi þeirra og áttu þær í erfiðleikum með að fara úr mjög virkum lífsstíl yfir í nánast algjöra einangrun vegna ljósfælni, svima, sjóntruflana, höfuðverkja og þreytu sem hélt þeim frá því að umgangast annað fólk. Einangrunin leiddi til mikillar vanlíðunar og vonleysis. Þátttakendur fundu einnig fyrir mikilli óvissu og kvíða á endurhæfingartímabilinu þar sem þær vissu ekki hvert þær áttu að leita og vissu ekki hvernig endurhæfingartímabilið liti út né hversu langan tíma það myndi taka. Skortur er á meðferðarúrræðum fyrir íþróttafólk sem fær heilahristing sem býður upp á markvisst endurhæfingarferli. Samanborið við önnur lönd, t.d. Bandaríkin, er Ísland eftir á hvað varðar meðferðarúrræði fyrir íþróttafólk og er þörf á að auka þekkingu fagaðila sem starfa með íþróttafólki og auka valmöguleika á meðferðarúrræðum. Lítil áhersla var lögð á sálfélagslega líðan þátttakenda í endurhæfingunni en fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi hlutverks sálfræðinga hjá íþróttafólki sem þarf að ganga í gegnum miklar breytingar á daglegu lífi sínu vegna heilahristings. \n \nLykilhugtök: Heilahristingur, sálfélagsleg einkenni, einangrun, endurhæfing, viðtöl
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,004 | 0,004 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,006 | 0,002 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,003 |
| Études des sciences et des technologies | 0,005 | 0,001 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,003 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,006 | 0,009 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,003 | 0,008 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».