Fjölskylduhjúkrun: Heimildasamantekt um þarfir og líðan fjölskyldna
Notice bibliographique
Résumé
Inngangur og markmið: Markmiðið er að fjalla almennt um hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar og um rannsóknir sem unnar hafa verið á fjölskyldum. Árið 2007 hófst innleiðingarferli fjölskylduhjúkrunar á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og er áætlað að því ljúki árið 2012. Verða þá kynntar íslenskar rannsóknir er varða innleiðingarferlið og árangurinn af því. Áhrifaríkar leiðir til að stunda fjölskyldu-hjúkrun eru til dæmis Calgary fjölskyldulíkanið sem byggir á hugmyndafræði frá árinu 2005. Hugtakið fjölskylda getur verið víðtækt því einstaklingar eru mismunandi og misjafnt hvernig fjölskyldur eru uppbyggðar. Fjallað verður nánar um fjölskylduskilgreiningar í verkefninu. Þegar talað er almennt um fjölskyldu er átt við hóp tveggja eða fleiri einstaklinga sem tengdir eru sterkum böndum. Þrjár rannsóknarspurningar voru lagðar til grundvallar: Hverjar eru hjúkrunarþarfir fjölskyldu sjúklinga sem fara í aðgerðir?. Hvaða þættir eru það sem eru mikilvægastir í þörfum fjölskyldumeðlima?. Hvaða þættir eru það sem fjölskyldumeðlimir láta í ljós varðandi tjáningu á líðan við veitta fjölskylduhjúkrun? \nAðferðafræði: Gagna var aflað úr gagnagrunnum og tímaritum um fjölskylduhjúkrun sem aðgengileg eru rafrænt. Heimildaleitin takmarkaðist við árin 2000-2011 Leitarorðin sem voru notuð við heimildaleit voru: family, surgery og family nursing. Tólf greinar fundust og voru notaðar til að svara ofangreindum rannsóknarspurningunum. \nNiðurstöður: Fjölskyldumeðlimir aðgerðarsjúklinga tjáðu helstu þarfir sínar vera fyrir stuðning, fræðslu og upplýsingar í veikinda-, aðgerðar- og bataferli ástvina sinna. \nStuðningur, fræðsla og gott upplýsingaflæði eru því lykilatriði í árangursríkri fjölskylduhjúkrun. \nÁlyktun: Ljóst er að fjölskylduhjúkrun sem er fjölþætt er mikilvæg í starfi hjúkrunarfræðinga á hvaða klíníska sviði sem er. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um þarfir og líðan fjölskyldunnar við veikindi sjúklinga á stofnunum. Fjölskyldan skiptir sjúklinginn miklu máli með tilliti til líðan hans, framvindu í veikindum og bataferli.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,001 |
| Communication savante | 0,000 | 0,000 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,003 | 0,004 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,012 | 0,014 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».