„Besta ákvörðun sem ég hef tekið var að skipta um skóla“ Upplifun ungmenna sem hafa skipt um framhaldsskóla, skólaval og viðhorf til framhaldsskóla
Notice bibliographique
Résumé
Markmið þessarar ritgerðar var að fá innsýn í val ungmenna, sem skiptu um skóla á framhaldsskólastiginu, á skóla og skoða hverja þau töldu hafa verið helstu þættina sem höfðu áhrif á valið. Einnig var lögð áhersla á að varpa ljósi á mögulegar ástæður fyrir því að þau skiptu um skóla, hver upplifun þeirra var af skólaskiptunum og að skoða reynslu ungmennanna af skólunum sem þau völdu og sóttu. Rannsóknin var unnin með eigindlegri rannsóknaraðferð og byggir á viðtölum við átta ungmenni. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á ýmsa þætti sem ungmennin töldu að hefðu skipt miklu um val þeirra á skóla. Skýrt munstur var á því hvort skólavalið væri út frá skóla eða námsbraut. Helmingurinn virtist frekar hafa valið sér nám út frá skóla en þeir nemendur sem völdu skóla út frá námi voru annað hvort að velja listnám eða tengt þeirri íþrótt sem þeir stunduðu. Þeir þættir sem virtust hafa áhrif á skólaval viðmælenda var vinir og jafnaldrar, úr bæði grunnskóla og þeim íþróttum sem þeir stunduðu, nálægð skólans við heimili og námsframboð. Skólaskipti virtust helst verða hjá viðmælendum þegar áhugi þeirra á námi fór dvínandi eða vegna vilja þeirra til að skipta um námsbraut. Áhrif foreldra komu helst fram þegar viðmælendur vildu skipta úr fyrsta framhaldsskólanum sem þeir höfðu sótt við lok grunnskóla. Foreldrar hvöttu ungmennin þá frekar til að skipta um skóla heldur en að hætta í námi. Einnig sýndu niðurstöður fram á sterk viðhorf viðmælenda til framhaldsskóla bæði þeirra sem þeir höfðu sótt og annarra í samfélaginu og það hafði jafnframt áhrif bæði á val þeirra á framhaldsskóla og á skólaskipti þeirra. Vonast er til að niðurstöðurnar verði gagnlegar bæði fyrir náms- og starfsráðgjafa sem og annað starfsfólk innan skólasamfélagsins. Að þær auki skilning á hvernig nemendur framkvæma skólaval sitt og þeim ástæðum sem geta ýtt undir ákvörðun ungmenna um að skipta um skóla. Með aukinn skilning í farteskinu væri hægt að aðstoða nemendur enn frekar við skólaval þeirra á framhaldsskólastigi með áhuga þeirra á námi sem leiðarljós, ásamt því að styðja nemendur þannig að ávinningur þeirra af skólaskiptunum yrði í forgangi.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,005 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,004 | 0,005 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,005 | 0,002 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,002 |
| Études des sciences et des technologies | 0,002 | 0,001 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,003 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,005 | 0,008 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,004 | 0,011 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».